Ryan Giggs er til í eitt ár til viðbótar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. janúar 2011 17:15 Ryan Giggs í 600. deildarleiknum á móti Tottenham. Mynd/AFP
Ryan Giggs er orðinn 37 ára gamall og búinn að vinna allt með Manchester United en hann er ekkert á því að fara að leggja skóna á hilluna. Giggs hefur nú gefið það út að hann hafi áhuga á því að spila eitt tímabil til viðbótar. Samningur Ryan Giggs og Manchester United er endurskoðaður eftir hvert tímabil og það bjuggust margir við því að hann væri núna á sínu síðasta tímabili. Giggs lék sinn 600. deildarleik með United á dögunum. „Ég er ánægður með að vera enn að spila og ég er að njóta fótboltans alveg eins mikið og áður. Ég hef alltaf sagt að á meðan ég hef gaman af boltanum þá mun ég halda áfram að spila. Við munum samt sem áður setjast niður og ræða málin en ég er spenntur fyrir því að spila næsta tímabil líka," sagði Ryan Giggs. Giggs segir að Ferguson myndi láta hann strax vita ef að hann væri ekki að standa sig inn á vellinum. „Hann væri sá fyrsti til að segja mér ef ég spilaði ekki vel eða að formið mitt væri ekki nógu gott. Við tölum meira saman í dag en við gerðum áður og við erum alltaf mjög hreinskilnir. Hann lætur mig alltaf vita hvenær ég spila og hvenær ég spila ekki. Ég veit því meira um stöðu mína í dag," segir Giggs. Giggs hefur unnið 31 titil með Manchester United á ferlinum en hann lék sinn fyrsta leik fyrir félagið árið 1991 og er því á sínu 21. tímabilið með félaginu. Giggs hefur ellefu sinnum orðið enskur meistari og er búinn að vinna enska bikarinn fjórum sinnum.
Mest lesið Allt í rugli í Formúlunni: „Hvaða þvæla er í gangi?“ Formúla 1 Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti Fýluferð til Keflavíkur: „Vitum ekkert eins og staðan er núna“ Fótbolti Strákarnir sitja fastir Fótbolti Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti FH - ÍBV | Hafnfirðingar þurfa sigur Íslenski boltinn Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Gat ekki munað nafnið eftir sextán hringi Sport Modric skammast sín Fótbolti Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Fótbolti Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira