Lampard lifir enn í voninni: Þurfum að vinna alla okkar leiki Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. febrúar 2011 14:45 Frank Lampard og Didier Drogba. Mynd/AP
Chelsea-maðurinn Frank Lampard er ekki búinn að gefa upp alla von um að verja Englandsmeistaratitilinn þrátt fyrir að liðið sé nú þrettán stigum á eftir toppliði Manchester United. Chelsea mætir Fulham á útivelli á morgun og getur þar minnkað forskotið niður í tíu stig. „Við vitum að við getum komist aftur inn í myndina en það þarf mikið að gerast til þess að það takist. Við verðum að vinna alla leiki okkar og vonast jafnframt til þess að hin liðin misstígi sig," sagði Frank Lampard. „Við megum samt ekki vera að hugsa of mikið um United. Markmiðið er að setja saman góða sigurgöngu svo að við getum minnkað forskot þeirra eitthvað áður en við mætum þeim," sagði Lampard en Chelsea og Manchester United eiga eftir að mætast tvisvar, fyrst á Brúnni 1. mars næstkomandi og svo aftur á Old Trafford í maí. „Við verðum helst að ná muninum niður í sex stig þegar við mætum þeim," segir Lampard. „Hungrið er enn til staðar í búningsklefanum og það er enginn vafi á því. Að vinna titla er eins og ánetjast eiturlyfi. Við viljum upplifa þá frábæru tilfinningu aftur og aftur," sagði Lampard. „Allir leikmennirnir gera sér vel grein fyrir því að okkur gekk skelfilega í nóvember, desember og inn í janúar. Fótboltatímabil getur þróast þannig en nú er tími fyrir stóru leikmennina og stóru persónuleikana til þess að stíga fram," segir Lampard. „Leikirnir við Manchester United verða rosalegir en það á eftir að koma í ljós hvort titillinn vinnst í þeim," sagði Lampard að lokum.
Mest lesið Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Handbolti Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn Bakgarðsáskorun: Stefnir hátt í síðasta Bakgarðshlaupinu sínu Sport Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Mun skilja sál mína eftir í búrinu“ Sport Er katastrófa að vinna ekki í dag? Fótbolti Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira