Fimm út og fimm inn hjá Chelsea í sumar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. maí 2011 10:45 Neymar fagnar hér marki með Santos. Mynd/AP
Guardian fer í dag yfir stöðu mála hjá Chelsea-liðinu sem er að leita sér að nýjum knattspyrnustjóra og nýjum íþróttastjóra. Það er búist við því að fimm leikmenn fari frá félaginu í sumar og að um fimm nýir leikmenn verði keyptir í staðinn. Chelsea er farið á fullt í leikmannamálin þótt að enginn viti hver setist í stjórastólinn. Chelsea endaði í 2. sæti í ensku úrvalsdeildinni í vetur og tókst ekki að vinna titil á tímabilinu. Carlo Ancelotti var rekinn strax eftir síðasta leikinn og félagið hefur nú gengið frá starfslokum Ítalans. Meðal þeirra leikmanna sem eru inn á óskalista Chelsea eru brasilíski framherjinn Neymar hjá Santos og belgísku táningarnir Romelu Lukaku og Kevin de Bruyne hjá Anderlecht og Genk. Chelsea mun líka væntanlega kaupa Gregory van der Wiel, bakvörð Ajaz og hollenska landsliðsins fyrir um níu milljónir punda og þá stendur yfir leit að varamarkverði Petr Cech. Portúgölsku bakverðirnir Paulo Ferreira og José Bosingwa eru báðir á útleið sem og Rússinn Yuri Zhirkov sem er að fara aftur til Rússlands. Chelsea mun einnig hlusta á öll tilboð í ginn 32 ára gamla Nicolas Anelka en það er talið líklegt að félagið bjóði Didier Drogba nýjan samning. Drogba hefur nú síðast verið orðaður við tyrkneska félagið Galatasaray en vill sjálfur helst spila áfram á Brúnni enda með vinsælustu leikmönnum félagsins.
Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Fleiri fréttir Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sjá meira