Innlent

Helgi Hjörvar: Mikil viðurkenning frá stjórnarandstöðunni

Helgi Hjörvar
Helgi Hjörvar
„Við erum ekki komin yfir erfiðleikana en okkur miðar vel áfram," sagði Helgi Hjörvar þingmaður Samfylkingarinnar í eldhúsdagsumræðum á Alþingi í kvöld.

Hann sagði að stjórnarandstaðan hafi viljað afnema gjaldeyrishöft fyrir jól. „Allir vita að til þess að afnema gjaldeyrishöft þarf að ríkja innanlands og erlendis víðtækt traust á íslensku efnahagslífi. Það er gott að stjórnarandstaðan hefur það traust á íslensku efnahagslífi að það megi falla frá höftunum fyrir jól. Það er í raun og veru mikil viðurkenning um þann algera viðsnúning í efnahagsmálum í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur."

Hann sagði að ríkisstjórnin hefði á undraskömmum tíma stýrt þjóðarskútunni úr hættu á þjóðargjaldþroti í það að allir spáaðilar eru einróma um að hér verði vöxtur í efnahagslífinu í ár. „Það er full ástæða fyrir okkur til þess að taka þessi bjartsýnisviðhorf stjórnarandstöðunnar og spáaðila með okkur inni í sumarið."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×