Klámmyndaleikkona segir þingmann ljúga 16. júní 2011 08:26 Anthony Weiner og Huma Abedin eiginkona hans. Hún ber nú fyrsta barn þeirra hjóna undir belti. Mynd/AFP Mynd/AFP
Bandarískur þingmaður sem viðurkennt hefur að hafa sent myndir af sér fáklæddum til nokkurra kvenna á ekki sjö dagana sæla - því klámyndaleikkona hefur nú stigið fram og blandað sér í málið. Anthony Weiner, þingmaður Demókrataflokksins í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, hefur viðurkennt að hafa sjálfur sent það sem bandarískir fjölmiðlar kalla frygðarfullar myndir af sér fáklæddum til annarra kvenna en eiginkonu sinnar. Áður hafði þingmaðurinn logið því til að einhver hefði hakkað sig inn á Twitter síðu hans og sent myndirnar að sér forspurðum. Nancy Pelosi, leiðtogi demókrata í fulltrúadeildinni, hefur þrýst á Weiner að segja af sér þingmennsku og þá hefur Barack Obama, Bandaríkjaforseti, sagt að hann væri búinn að segja af sér væri hann í sporum þingmannsins. Og enn aukast vændræði Weiners því nú hefur klámmyndaleikkona að nafni Ginger Lee stigið fram og sagt að Weiner hafi beðið sig um að ljúga til um samskipti þeirra en þau skiptust á hátt í hundrað skilaboðum á netinu. Klámmyndaleikkonan vill að þingmaðurinn segi af sér þar sem hann hefur ítrekað logið eftir að málið varð opinbert. Þingmaðurinn hefur ekki tjáð sig um yfirlýsingar klámmyndaleikkonunnar en nú er talið enn líklegra en áður að hann muni segja af sér þingmennsku.
Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Fleiri fréttir „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Sjá meira