Harðir bardagar milli Gaddafi og uppreisnarmanna 16. júní 2011 18:47
Harðir bardagar geisa milli herja Muammars Gaddafis og uppreisnarmanna sem eru smám saman að reyna að brjóta sér leið meðfram strönd Miðjarðarhafsins í átt að höfuðborginni Trípólí. Stórskotaliði og eldflaugum er óspart beitt í átökunum milli uppreisnarmanna og herja Gaddafis Uppreisnarmönnum hefur vaxið fiskur um hrygg síðan þeir áttu sér aðeins athvarf í borginni Benghasi. Benghasi er næst stærsta borg landsins og um 1400 kílómetra frá Trípólí. Uppreisnarmenn eru nú aðeins um 200 kílómetra frá höfuðborginni. Því fer þó fjarri að þeir ráði öllu því svæði sem þeir hafa lagt að baki. Velgengni þeirra undanfarnar vikur er eingöngu til komin vegna loftárása NATO á virki og vígtól Gaddafis. Uppreisnarmenn eru lítt þjálfaðir og lítt agaðir. NATO á fullt í fangi með að halda aftur af þeim svo þeir æði ekki út í opinn dauðann af minnsta tilefni. Jafnvel í veg fyrir sprengjuflugvélar NATO sem eru að reyna að ryðja brautina fyrir þá. Það virðist enn vera að gerast núna. NATO hefur beðið þá um að hægja sókn sína og bíða eftir að flugvélar bandalagsins ryðji þeim leið. Eins og venjulega vilja þeir ekki bíða heldur æða áfram. Ekki kæmi á óvart þótt það kostaði mannslíf. Uppreisnarmenn hafa ósjaldan verið hraktir afturábak með skottið á milli lappanna. Hugrekki þeirra og baráttuvilji verður hinsvegar ekki dreginn í efa.
Mest lesið Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi Innlent Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Innlent Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Innlent Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Innlent Fleiri fréttir Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Sjá meira