Erlent

Einn fórst þegar loftskip brann til kaldra kola

Mynd/AP
Einn lét lífið þegar loftskip brann til kaldra kola nærri bænum Reichelsheim í Þýskalandi í gær. Skipið var að koma úr útsýnisferð þegar slysið átti sér stað en fjórir voru um borð, þrír farþegar og flugstjóri. Farþegarnir náðu að sleppa frá borði en flugstjórinn náði hins vegar ekki að forða sér. Eldsupptök eru ókunn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×