Tók 16 mánuði að úrskurða 20. desember 2011 10:00 upplýsingar Menntamálaráðuneytið synjaði beiðni Fréttablaðsins um upplýsingar í ágúst 2010, en hefur nú verið skikkað til að afhenda megnið af umbeðnum gögnum.Fréttablaðið/Stefán
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál var nærri eitt og hálft ár að komast að niðurstöðu vegna kæru Fréttablaðsins. Menntamálaráðuneytinu ber að afhenda gögn um deilu starfsmanna Iðnskólans í Hafnarfirði. Það tók úrskurðarnefnd um upplýsingarmál nærri eitt og hálft ár að fella úrskurð vegna kæru blaðamanns Fréttablaðsins eftir að menntamálaráðuneytið neitaði að afhenda gögn á grundvelli upplýsingalaga. „Þetta er óhæfilega langur málsmeðferðartími, ég dreg enga dul á það,“ segir Trausti Fannar Valsson, formaður úrskurðarnefndarinnar. Hann segir eðlilegan málsmeðferðartíma hjá nefndinni þegar allt gangi vel eiga að vera frá einum og hálfum mánuði að þremur mánuðum. Fréttablaðið óskaði í lok júlí 2010 eftir gögnum frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu sem vörðuðu deilu kennara og skólameistara Iðnskólans í Hafnarfirði. Ráðuneytið neitaði að afhenda gögnin, og var synjunin kærð til úrskurðarnefndar um upplýsingamál í lok ágúst það sama ár. Úrskurðarnefndin hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að ráðuneytinu beri að afhenda stóran hluta þeirra gagna sem beðið var um, og tengjast deilu tveggja kennara við skólameistarann. Úrskurðurinn kemur hins vegar heldur seint þar sem skólameistarinn sagði í millitíðinni öðrum kennaranum upp störfum, og lét svo sjálfur af störfum um síðustu áramót, eins og Fréttablaðið fjallaði um á síðasta ári. Trausti segir að af ýmsum orsökum hafi safnast upp talsverður hali af málum hjá úrskurðarnefndinni, sem nú sé að takast að greiða úr að mestu. Það mál sem hér sé fjallað um sé eitt af þeim sem hafi tekið hvað lengstan tíma að úrskurða um. Þó séu dæmi um mál sem hafi tekið enn lengri tíma. „Það eru engar beinar skýringar á þessu, aðrar en þær að við höfum ekki haft mannafla eða aðstöðu til að klára málin hraðar. Það eru í sjálfu sér ekki afsakanir miðað við hvernig lögin eru,“ segir Trausti. Hann segir nefndina hafa fengið fleiri og umfangsmeiri mál á síðustu tveimur árum en tíðkast hafi fyrir það. Nefndin þurfi að fara yfir stóra gagnabunka í mörgum málum, sem taki tíma. Trausti bendir einnig á að ákveðin verkefni hafi bæst á nefndina, til dæmis með setningu laga um upplýsingarétt um umhverfismál. Þá fjalli nefndin um mál sem varða aðgengi að gögnum rannsóknarnefndar Alþingis vegna bankahrunsins sem séu oft afar umfangsmikil. Trausti er lektor í stjórnsýslurétti við Háskóla Íslands, og hann segir að í gegnum það starf verði hann var við að málsmeðferðartími hjá hinu opinbera sé almennt að lengjast. Stjórnsýslan standi nú frammi fyrir þeirri áskorun að halda málsmeðferðarhraðanum í lagi þrátt fyrir minna fjármagn. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Byrja ekki að sekta á morgun Sjá meira