Kínverjar gagnrýna Asíuáform Obama 18. nóvember 2011 06:00 Leiðtogar Suðaustur-Asíuríkjanna á fundinum í Indónesíu. Thein Sein, hinn nýi leiðtogi Búrma, er lengst til hægri. nordicphotos/AFP
Heimsókn Baracks Obama Bandaríkjaforseta setur svip sinn á leiðtogafund tíu Suðaustur-Asíuríkja sem hófst á eyjunni Balí í Indónesíu í gær. Obama hefur kynnt margvísleg áform um sterkari ítök Bandaríkjanna á Kyrrahafinu og allt til Asíu. Þau áform hafa mætt gagnrýni, ekki síst frá Kínverjum, sem virðast telja þessi auknu umsvif beinast gegn sér. „Bandaríkin telja að heimsyfirráðum þeirra stafi nú vaxandi hætta frá Kína,“ segir í ritstjórnargrein frá Xinhua, hinni opinberu fréttastofu kínverskra stjórnvalda. „Þess vegna er þessari breyttu áherslu Bandaríkjanna, sem nú horfa til austurs, í reynd beint að því að halda Kína niðri og halda Kína í skefjum og vinna á móti þróun Kína.“ Í ræðu sem Obama hélt í Ástralíu, þar sem níu daga Asíuferð hans hófst á miðvikudag, sagði hann að Bandaríkin myndu á næstunni leggja mikla áherslu á að rækta tengsl sín við Kyrrahafs- og Asíuríki, ekki síst í varnarmálum. Fjárhagslegur niðurskurður í Bandaríkjunum myndi ekki draga neitt úr því. „Nú þegar flest kjarnorkuveldi heims og helmingur mannkyns eru í Asíu mun Asía að stórum hluta ráða því hvort öldin fram undan einkennist af átökum eða samvinnu, tilgangslausum þjáningum eða framförum mannkyns,“ sagði hann og lagði meðal annars áherslu á að efla samstarf við Kína. Á leiðtogafundi Suðaustur-Asíuríkjanna bar það annars til tíðinda að tekin var ákvörðun um að Búrma yrði gestgjafi fundarins árið 2014. Þessi ákvörðun var tekin eftir að ljóst þótti að verulegar lýðræðisumbætur væru að eiga sér stað í Búrma eftir að Sinn Thein tók við forsetaembætti þar í kjölfar hinna umdeildu kosninga fyrr á árinu. Stjórnvöld í Búrma hafa meðal annars látið fjölda stjórnarandstæðinga lausa úr fangelsi og fyrir liggur að Lýðræðishreyfingin, flokkur Aung San Suu Kyi, fái á ný skráningu sem löglegur flokkur og geti boðið fram til næstu kosninga. Þessi flokkur vann stórsigur í kosningum árið 1990 en herforingjastjórnin þar vildi ekki viðurkenna sigurinn og hefur síðan barið niður alla stjórnarandstöðu í landinu, allt þar til nú á síðustu mánuðum. Meðal erfiðra viðfangsefna á leiðtogafundinum eru deilur um tilkall til nokkurra eyja í Suður-Kínahafi og mörk landhelgi ríkjanna. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? Innlent Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Erlent „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Innlent Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Innlent Fleiri fréttir Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Sjá meira