Erlent

Þúsundir hafa fallið í Sýrlandi

Bashar al-Assad Sýrlandsforseti lætur sem ekkert sé.fréttablaðið/AP
Bashar al-Assad Sýrlandsforseti lætur sem ekkert sé.fréttablaðið/AP
Átökin í Sýrlandi síðustu átta mánuði hafa kostað að minnsta kosti 3.500 manns lífið, samkvæmt nýjum tölum frá mannréttindaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna.

Þetta er varfærið mat, byggt á heimildum frá Sýrlandi sem taldar eru trúverðugar.

Frá því að uppreisnin gegn Bashar al-Assad forseta hófst í mars síðastliðnum hafa sýrlensk stjórnvöld einangrað landið, lokað alla erlenda fjölmiðla úti og ráðist af hörku gegn mótmælendum, sem þó halda ótrauðir áfram mótmælum sínum.- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×