Kerfisbundnar misþyrmingar 7. júlí 2011 08:45 Sýrlenski herinn Sakaður um gróft ofbeldi gegn íbúum landsins í maí. Mynd/AFP
Mannréttindasamtökin Amnesty International segja sýrlenskar öryggissveitir að öllum líkindum hafa framið glæpi gegn mannkyni í umsátri sínu um bæinn Talkalakh í maí síðastliðnum. Mótmælendur í bænum höfðu staðið fyrir mótmælum vikum saman gegn Bashar Assad forseta og krafist afsagnar hans. Á endanum þoldi forsetinn ekki lengur við og sendi herinn á vettvang. Við tók blóðugt umsátur um bæinn, sem er skammt frá landamærum Líbanons. Talið er að tugir manna hafi látið lífið. Þúsundir flýðu yfir landamærin til Líbanons. Amnesty International hefur rætt við fjölmörg vitni, sem skýra frá því að fólk hafi látist í fangaklefum, sætt pyntingum og handtökur hafi verið gerðar af handahófi. Frá þessu er skýrt í nýrri skýrslu samtakanna. Samtökin skora nú á Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna að vísa málinu til Alþjóðlega sakadómstólsins í Haag, sem fjallar um stríðsglæpi. Amnesty segir flest benda til þess að glæpir gegn mannkyni hafi verið framdir. „Frásagnir vitna sem við höfum hlýtt á frá þessum atburðum draga upp afar óviðkunnanlega mynd af kerfisbundnum og markvissum misþyrmingum til að berja niður andóf,“ segir Philip Luther, aðstoðarframkvæmdastjóri Mið-Austurlanda- og Afríkudeildar samtakanna. - gb
Mest lesið Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Innlent Hnífjafnt í síðustu könnuninni Innlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira