Erlent

Neita að hafa handtekið majór

Vestrænir fjölmiðlar segja að yfirmaður í hernum hafi verið handtekinn fyrir að veita Bandaríkjamönnum upplýsingar.Fréttablaðið/AP
Vestrænir fjölmiðlar segja að yfirmaður í hernum hafi verið handtekinn fyrir að veita Bandaríkjamönnum upplýsingar.Fréttablaðið/AP
Yfirvöld í Pakistan segja alrangt að yfirmaður í hernum hafi verið handtekinn fyrir að veita bandarískum yfirvöldum upplýsingar um verustað Osama Bin Laden.

New York Times sagði fyrst frá því að majór í hernum sé meðal fimm Pakistana sem séu í haldi vegna málsins, en þarlend yfirvöld játa hvorki né neita að handtökur hafi átt sér stað yfir höfuð. Samband Pakistan og Bandaríkjanna hefur verið afar stirt að undanförnu. - þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×