Erlent

Aukin harka í aðgerðum sýrlenska hersins

Mynd/AFP
Sýrlenski herinn einbeitir sér nú að bæjum og þorpum í nágrenni landamæranna við Tyrkland í aðgerðum sínum gegn andófsfólki.

Samkvæmt frétt BBC eyðir herinn flestu því sem fyrir verður, en stjórnvöld segjast vera að berjast gegn vopnuðum uppreisnarmönnum. Átök hafa staðið í landinu í tólf vikur og telja mannréttindasamtök að um 1.300 mann hafi látist á þeim tíma. Þúsundir hafa flúið land, flestir til Tyrklands. -kj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×