Erlent

Stöðvaður með sprengiefni og skotvopn í Köben

Frá Danmörku
Frá Danmörku
Lögreglan í Kaupmannahöfn fann eitt og hálft kíló af sprengiefnum ásamt skotvopnum og hluta af lögreglubúningum í bíl í gær. Í bílnum var allt sem þarf til að búa til öfluga sprengju, að sögn lögreglunnar.

Lögreglan reynir nú að komast að því hvað ökumaður bílsins ætlaðist fyrir. Maðurinn er 27 ára gamall og er frá Bröndby. Hann er á sakaskrá en ekki fyrir brot af þessu tagi. Hann hefur neitað að segja frá því hvers vegna efnin voru í bíl hans. - þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×