Erlent

Námið rúmlega hálf vinna

Nú er hægt að skoða regnbogalistaverk Ólafs Elíassonar í Árósum.
mynd/ww.ARos.dk
Nú er hægt að skoða regnbogalistaverk Ólafs Elíassonar í Árósum. mynd/ww.ARos.dk
Danskir háskólanemar eyða einungis um 28,5 klukkustundum á viku í nám sitt. Það kemur fram í niðurstöðu könnunar við Árósaháskóla.

Alls tóku um 11 þúsund stúdentar þátt í könnuninni, en í samanburði við könnun sem gerð var árið 2008 virðast ungmennin nú eyða hálfri klukkustund minna á viku í fyrirlestra og undirbúning.

Þessi niðurstaða er áfall að sögn talskonu samtaka atvinnulífsins í Danmörku. Afleiðingarnar gætu orðið þær að í framtíðinni muni dönsk fyrirtæki frekar leita að hæfu starfsfólki erlendis.- þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×