Erlent

Enn flýja þúsundir ofbeldið í Sýrlandi

Flóttafólk frá Sýrlandi fyrir utan búðir sem settar hafa verið upp í Boynuyogun í grennd við landamærin. Áfram streymir flóttafólk yfir til Tyrklands. fréttablaðið/ap
Flóttafólk frá Sýrlandi fyrir utan búðir sem settar hafa verið upp í Boynuyogun í grennd við landamærin. Áfram streymir flóttafólk yfir til Tyrklands. fréttablaðið/ap
Rúmlega sex þúsund Sýrlendingar hafa flúið yfir til Tyrklands síðustu sólarhringa eftir að sýrlenski herinn náði völdum í borginni Jisr al-Shughour. Fólkið hefst við í flóttamannabúðum sem eru óðum að fyllast.

Herlið fór inn í borgina snemma á sunnudagsmorgun að sögn sjónarvotta, en þar sem erlendir fjölmiðlar fá ekki að koma til Sýrlands er erfitt að staðfesta fréttir. Þyrlur sáust sveima yfir borginni og skriðdrekar keyrðu inn í hana, en að sögn mannréttindasamtaka var sprengjum einnig varpað. Hershöfðingjar hafa neitað því. Þá hafa fjölmiðlar í landinu sagt að tveir vopnaðir meðlimir í hryðjuverkasamtökum hafi verið drepnir, en jafnframt hafi einn hermaður látist og fjórir slasast. Talið er að hersveitir muni næst gera innrás í bæinn Maarat al-Numan, í nágrenni Jisr al-Shughour.

Fjöldi fólks hefst enn við á mörkum landanna tveggja í norðri og býr sig undir að fara yfir til Tyrklands ef hersveitir nálgast svæðið meira. Þó hafa yfir sex þúsund manns flúið yfir landamærin á síðustu dögum og skráð sig hjá tyrkneskum yfirvöldum. Breska ríkisútvarpið segir að fimm þúsund til viðbótar séu komnir yfir landamærin en hafi ekki skráð sig formlega. Rauði hálfmáninn hefur sett upp nokkrar flóttamannabúðir við landamærin, sem eru nú fullar eða að fyllast. Því er verið að koma upp fjórðu búðunum nú.

Jisr al-Shughour er um 20 kílómetra frá landamærunum og aðeins um fimmtíu þúsund manns búa þar. Flestir flóttamennirnir koma þaðan eða annars staðar úr Idlib-héraði.

William Hague, utanríkisráðherra Bretlands, fordæmdi ofbeldisverk stjórnvalda í Sýrlandi í yfirlýsingu á sunnudag. Hann kallaði einnig eftir því að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna tæki skýra afstöðu í málinu. Það gæti þó reynst erfitt þar sem stjórnvöld í Líbanon, sem á sæti í ráðinu, eru nánir bandamenn stjórnvalda í Sýrlandi.

Stjórnvöld í Sýrlandi segja að fimm hundruð meðlimir öryggissveita hafi látist síðan mótmæli gegn forseta landsins, Bashar Assad, hófust um miðjan mars. Mannréttindasamtök segja að 1400 Sýrlendingar hafi verið drepnir og yfir tíu þúsund handteknir á sama tíma. thorunn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×