Skriðdrekar brenna eftir árásir bandamanna við Benghasí í Líbíu 22. mars 2011 09:00 Uppreisnarmenn sóttu að stjórnarher Líbíu við bæinn Ajdabiya í gær, en hörfuðu aftur eftir harða mótspyrnu stjórnarhersins. Nordicphotos/AFP
Ónýtir skriðdrekar og brynvarðir bílar sáust víða á vegum í nágrenni borgarinnar Benghasí í gær. Borgin er höfuðvígi uppreisnarmanna gegn stjórn Moammars Gaddafí, einræðisherra Líbíu. Hart hefur verið barist í nágrenni borgarinnar undanfarið. Stjórnarher Líbíu hörfaði frá uppreisnarmönnum nærri Benghasí eftir að loftárásir frá breskum og frönskum orrustuþotum eyðilögðu skriðdreka og önnur hertól sem þeir höfðu notað til að sækja að vígi uppreisnarmanna. Í kjölfarið sóttu uppreisnarmenn fram í átt að bænum Ajdabiya, en urðu frá að hverfa eftir að hafa mætt harðri mótstöðu. Nokkurt mannfall varð í bardögunum í gær, en tölur um fallna og særða hafa ekki fengist staðfestar. Vestræn ríki sem gera nú loftárásir á Líbíu í kjölfar ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna skutu seint á sunnudag stýriflaugum á byggingu sem sagt er að hafi verið notuð til að skipuleggja og stýra árásum stjórnarhers landsins á uppreisnarmenn. Byggingin stóð á víggirtu svæði í Trípólí, höfuðborg landsins. Á svæðinu er einnig höll Gaddafí ásamt bedúínatjaldinu sem hann er sagður búa í. Markmiðið með árásunum var ekki að ráða Gaddafí af dögum segir yfirmaður breska hersins. Engar fregnir hafa borist af því hvort Gaddafí var yfirhöfuð á svæðinu þegar árásin var gerð. Engar fregnir hafa borist af mannfalli í árásinni. Hópur óbreyttra borgara hafði á föstudag tekið sér stöðu utan við svæðið til að koma í veg fyrir að hægt væri að gera árásir á það án þess að valda miklu mannfalli meðal óbreyttra borgara. Engar fregnir hafa borist af því hvort margir óbreyttir borgarar hafi verið á staðnum þegar árásin var gerð. Þrátt fyrir að Gaddafí haldi reglulega til á svæðinu segja talsmenn breskra og franskra stjórnvalda að hann hafi ekki verið skotmarkið. Talsmaður franska varnarmálaráðuneytisins sagði raunar að þó að bandalagsherirnir vissu hvar Gaddafí væri yrði ekki ráðist gegn honum persónulega. Yfirmaður breska heraflans sagði slíka árás ekki rúmast innan ramma ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Áður hefur þó komið fram að verði Gaddafí nærri þeim stöðum sem gerðar verði árásir á sé líf hans í hættu, eins og líf annarra í nágrenninu. Staðfestar upplýsingar um mannfall hafa ekki borist frá því loftárásir bandalagsríkja hófust á laugardag. Upplýst var í gær að allar flugvélar sem notaðar hafa verið til eftirlits og árása hafi snúið óskaddaðar til baka.
Mest lesið Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Innlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent „Stundum koma upp atvik“ Innlent Fleiri fréttir Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Sjá meira