Forsætisráðherra Breta vill hertar aðgerðir 12. mars 2011 21:00 David Cameron forsætisráðherra Bretlands
Utanríkisráðherrar átta helstu iðnríkja heims ætla að funda á mánudag og þriðjudag um borgarastyrjöldina í Líbíu. Varnarmálaráðherrar Atlantshafsbandalagsins (NATO) náðu ekki samkomulagi um aðgerðir gegn einræðisstjórn Múammars Gaddafís og stuðningsmönnum hans síðla í vikunni. Varnarmálaráðherrar Breta og Frakka eru þeir einu sem hafa talað fyrir því bæði á fundum aðildarríkja NATO og Evrópusambandsins í vikunni að beita hörku gegn Gaddafí og stuðningsherjum hans. Fulltrúar landanna hafa lagt drög að tillögu sem leggja á fyrir Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna og felur í sér að flugbann verði sett yfir Líbíu. Tillagan hefur ekki hlotið samþykki Rússa, Kínverja, Þjóðverja og Ítala, sem vilja fara hægar í sakirnar, að sögn AFP-fréttastofunnar. Fulltrúar þjóðanna hvetja Gaddafí til að stíga af valdastóli og vilja taka upp viðræður við uppreisnarmenn. Stjórnarher Gaddafís sótti í sig veðrið þegar líða tók á vikuna og hrakti uppreisnarmenn á brott frá hafnarborginni Ras Lanuf í norðurhluta landsins. Saíf al-Islam Gaddafí, sonur einræðisherrans, sagði í sjónvarpsávarpi í gær stjórnarherinn ekki ætla að gefast upp fyrir uppreisnarmönnum. „Þetta er okkar land. Við ætlum að deyja hér,“ sagði hann og þvertók fyrir að landar sínir myndu fagna því ef herlið NATO eða annarra bandalagsríkja kæmi til landsins. David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, brást reiður við andstöðu vestrænna ríkja við því að beita hervaldi gegn Gaddafí í ræðu sinni um málið í Brussel í Belgíu í gær. - jab
Mest lesið „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Innlent „Við bara svolítið sitjum uppi með þetta“ Innlent Enn fleirum sagt upp hjá Árvakri Innlent Börn niður í leikskólaaldur um helmingur þeirra sem slasast Innlent Eftirminnilegasta augnablikið á ferlinum: „Hann sat á móti mér nokkuð rauður og þrútinn og hvæsti“ Innlent Árangur aðgerða ekki staðist væntingar almennings Innlent Þessir Íslendingar kvöddu á árinu 2025 Innlent Kolbrúnu Bergþórs sagt upp á Mogganum Innlent Frímúrarareglan vill lögbann á nýjar lögreglureglur Erlent Sátt við fyrsta árið og taka stöðuna vegna forfalla ráðherra á næstu dögum Innlent Fleiri fréttir Handtóku 357 meinta ISIS-liða í kjölfar mannskæðra átaka „Sannur Finni“ fær hæli í Rússlandi Sífellt fleiri hermenn falla á ári hverju Hvetur ESB til að svara refsiaðgerðunum Bandaríkjanna fullum hálsi Þrítugasta árásin á bát meintra smyglara TikTok-áskorun leiddi til banafalls af útvarpsmastri Blóðbaðið í El Fasher: Milljón manna borg orðin að „draugabæ“ Neita að ræða við Úkraínumenn vegna meintrar árásar á heimili Pútíns Sádar sprengja hergögn frá furstadæmunum í Jemen og hóta frekari árásum Á lista yfir þrjú hlýjustu ár í mælingasögunni Selenskí sver af sér drónaárás á heimili Pútíns Bandaríkin leggja til tvo milljarða dala með skilyrðum Trump hótar skelfilegum afleiðingum afvopnist Hamas ekki Neita að tjá sig um ummæli Trumps um árás í Venesúela Kim ánægður með nýjar stýriflaugar Þrír lögregluþjónar og sex ISIS-liðar fallnir eftir átök í Tyrklandi Vill lengri tryggingar og tilbúinn til að hitta Pútín Frímúrarareglan vill lögbann á nýjar lögreglureglur Milljón dalir eða meira fyrir náðun Umkringdu Taívan og æfðu lokanir hafna „Markmið mitt var bara að ná byssunni af honum“ Minnst einn látinn eftir að tvær þyrlur rákust saman í loftinu Trump telur friðarsamkomulag mögulegt innan nokkurra vikna „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Átti gott samtal við Pútín Skildu farþega eftir í fyrri ferð og strönduðu í annarri Í deilum við nágrannann vegna trjáa Mesti snjór í New York í fjögur ár Þrír létust í óveðrinu Ræðir uppfærða friðaráætlun við Trump í dag Sjá meira
Eftirminnilegasta augnablikið á ferlinum: „Hann sat á móti mér nokkuð rauður og þrútinn og hvæsti“ Innlent
Eftirminnilegasta augnablikið á ferlinum: „Hann sat á móti mér nokkuð rauður og þrútinn og hvæsti“ Innlent