Þrjátíu og fimm ríki eru rekin með halla 8. janúar 2011 08:00 Illinois-ríki er talið í mestum efnahagserfiðleikum af ríkjum Bandaríkjanna. Áhyggjuraddir eru farnar að heyrast um greiðslufall ríkisins en slíkt ástand hefur ekki skapast í ríkjum Bandaríkjanna síðan árið 1933, þegar Arkansas gat ekki greitt sínar skuldir. Mynd/AFP-NordicPhotos
Þrjátíu og fimm af fimmtíu ríkjum Bandaríkjanna eru rekin með halla á þessu ári. Samanlagður fjárlagahalli þeirra er talinn nema um 16.500 milljörðum íslenskra króna, eða um 140 milljörðum Bandaríkjadala. Næst á eftir hruni húsnæðismarkaðarins er fjárhagsvandi ríkjanna talinn mesti efnahagsvandi sem Bandaríkin eiga nú við að etja. Hallinn í Kaliforníu er 6,6 prósent af ríkisútgjöldum en talið er að horfurnar séu verstar í Illinois, þar sem hallinn nemur um 47 prósentum af útgjöldum ríkisins, að sögn Bloomberg. Á fréttavefnum Chicago Breaking Business segir að ríkið hafi lengi notað lánsfé til að fjármagna rekstur sinn. Eyða mætti tæpum helmingi hallans með því að hækka tekjuskatt einstaklinga úr 3 prósentum í 5 prósent. Skattahækkanir njóta takmarkaðs stuðnings á nýkjörnu fylkisþingi Illinois í kjölfar kosningasigurs repúblíkana. Skuldatryggingaálag á skuldabréfum Illinois-ríkis hefur náð nýjum hæðum. Nýr formaður fjárlaganefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í Washington-borg, repúblikaninn Paul Ryan frá Wisconsin, segir að forsvarsmenn nokkurra ríkja gefi til kynna áhyggjur af greiðslufalli í einkasamtölum við áhrifamenn í Washington. Hann segir þó að ríkin geti engrar aðstoðar vænst frá alríkisstjórninni. „Ættu skattgreiðendur í Indiana, sem hafa borgað sína reikninga á réttum tíma, að borga vanskilaskuldir óreiðumanna í Kaliforníu?“ spyr Paul Ryan í samtali við Bloomberg, og svarar sjálfur: „Nei, það mundi fela í sér siðferðislega áhættu sem við höfum engan áhuga á að taka.“ Þótt margir fjárfestar sem eiga miklar eignir í skuldabréfum ríkjanna séu órólegir telja aðrir ljóst að Paul Ryan og alríkisstjórnin muni eiga erfitt með að víkja sér undan vandanum. „Eftir að hafa sagt já við AIG yrði erfitt fyrir alríkisstjórnina að segja nei við Illinois,“ segir Hugh McGuirk, sem stýrir sjóði sem á um 1.600 milljarða eignir í skuldabréfum sveitarfélaga. Hann vísar til þess að aðgerðir til að forða stærsta tryggingafélagi Bandaríkjanna frá falli hafi kostað bandaríska skattgreiðendur 182 milljarða dala, sem er hærri fjárhæð en samanlagður halli ríkjanna fimmtíu. peturg@frettabladid.is
Mest lesið Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum Innlent Brenndu rangt lík Erlent Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Innlent Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Innlent Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Erlent Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Innlent Fleiri fréttir Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Fjórir göngumenn látnir eftir snjóflóð í Grikklandi Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Sjá meira