Þegar Makiko Iwafuchi fór út af hóteli sínu 25. maí síðastliðinn ætlaði hún í stutta gönguferð meðfram stöðuvatninu Goshaikunda í Nepal. Sú gönguferð tók tvær vikur. Hún snarvilltist og komst ekki til byggða fyrr en síðastliðinn þriðjudag. Á villuráfi sínu borðaði hún gras og drakk vatn úr fjallalækjum. Og baðst fyrir heitt og innilega. Hún svaf í hellum eða undir klöppum.
Makiko er 49 ára gömul og læknar segja hana ótrúlega hressa eftir göngutúrinn.
Lifði á grasi og bænum

Mest lesið
Fleiri fréttir
