Enski boltinn

Park hættur með landsliði Suður-Kóreu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ji-sung Park í leik með landsliði Suður-Kóreu.
Ji-sung Park í leik með landsliði Suður-Kóreu. Nordic Photos / AFP
Ji-sung Park er hættur að spila með landsliði Suður-Kóreu en þetta staðfesti þjálfari liðsins í gær.

Þá vann Suður-Kórea 3-2 sigur á Úsbekistan í bronsleiknum í Asíukeppninni sem lýkur í dag með úrslitaleik Japans og Ástralíu.

Park, sem hefur verið landsliðsfyrirliði, tók ekki þátt í leiknum né heldur Young-pyo Lee, leikmaður Tottenham.

„Tveir leikmenn í okkar liði, Park og Lee, hafa ákveðið að hætta að spila með landsliðinu," sagði landsliðsþjálfarinn Kwang-rae Cho.

„Knattspyrnan í Suður-Kóreu á þeim mikið að þetta. Það væri betra að halda þeim í landsliðinu en báðir hafa staðið sig einstaklega vel."

Park lék alls 100 landsleiki á ferlinum og þann síðasta í undanúrslitaleiknum gegn Japan sem Suður-Kórea tapaði í vítaspyrnukeppni.

Cho greindi frá því að Park vildi spila gegn Úsbekistan en ákveðið var að hvíla hann. Síðustu tveir leikir liðsins á undan voru báðir framlengdir og vildu þeir ekki hætta á að hann myndi meiðast og þar með missa af næstu leikjum Manchester United.

„Ég ákvað að láta hann ekki spila svo að framtíð hans hjá hans félagi væri ekki í hættu."

Park sjálfur hefur ekki staðfest að hann sé hættur að spila með landsliðinu en hann mun halda blaðamannafund á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×