Skuldum vafinn kvennabósi 10. nóvember 2011 12:15 Murray átti í símasambandi við þrjár ástkonur sínar daginn sem Jackson dó; þær Michelle Bella, Sade Anding og Nicole Alvarez.
Michelle Bella. Conrad Murray var á mánudag fundinn sekur um að hafa valdið dauða poppgoðsins Michaels Jackson með gáleysi sínu af kviðdómi dómstólsins í Los Angeles. Hann á yfir höfði sér fjögurra ára fangelsi. Murray er ekki allur sem hann er séður þótt fæstir efist um læknishæfileika hans. Breska blaðið Daily Mail birti í vikunni ítarlega grein um fortíð læknisins Conrad Murray sem var fundinn sekur um að hafa valdið dauða Michael Jackson með gáleysi sínu í júní 2009. Murray á yfir höfði sér fjögurra ára fangelsi og verður væntanlega sviptur læknisréttindum ævilangt. Fjölskylda Jacksons fagnaði ákaft þegar kviðdómurinn kynnti niðurstöðu sína í dómsal í Los Angeles og sagði að réttlætinu hefði verið fullnægt. Við réttarhöldin kom fram að Murray hefði átt í síma-samskiptum við þrjár ástkonur sínar þegar hann átti að vera að hjúkra Jackson þennan örlagaríka dag í júní. Það voru ekki faglegar ástæður sem bjuggu að baki þeirri ákvörðun Murray að taka við starfi læknis hjá Michael Jackson. Hans helsta hlutverk var að sprauta poppgoðið með sterku svefnlyfi sem á endanum dró það til dauða.Sade Anding.Murray var ákaflega viðkunnanlegur læknir í Las Vegas sem hafði nóg að gera. Vandinn var hins vegar sá að verkefnin nægðu ekki til að borga þær skuldir sem hann hafði komið sér í með glamúrlífsstíl sínum. Murray var nefnilega óforbetranlegur kvennabósi, átti nánast konu og barn í hverri höfn, skuldaði himinháar upphæðir í meðlög og hafði auk þess komið sér í verulega vond mál með glæsilegri villu sinni í Las Vegas. Hún var á leiðinni á uppboð vegna 96 þúsund dollara skuldar þegar Jackson birtist eins og riddarinn á hvíta hestinum og bauð honum starf sem einkalæknir sinn. Murray fór vel og vandlega yfir fjárhagsstöðu sína, sá að þar stefndi í óefni og ákvað að gera Jackson tilboð; hann vildi fá 4,8 milljónir dollara fyrir starfið en sættist að lokum á 160 þúsund dollara á mánuði sem samsvarar tæplega nítján milljónum íslenskra króna.Nicole Alvarez.Samkvæmt Daily Mail er Murray kvæntur maður en hefur feðrað að minnsta kosti sjö börn með sex konum, flest af þeim utan hjónabands. Hann hefur verið kærður fyrir ógreidd meðlög allnokkrum sinnum og var gert að sitja inni árin 2007 og 2009. Í bæði skiptin tókst honum að komast hjá fangelsisvist með því að greiða sektirnar. Sem dæmi um kvensemi Murray þá borgaði hann leigu upp á 2.564 dollara fyrir ástkonu sína, Nicole Alvarez, í Kaliforníu á meðan hann bjó með eiginkonu sinni og tveimurbörnum í Las Vegas. Murray neyddist jafnframt til að flytja frá San Diego, þar sem hann var læknir, eftir að hafa gert hjúkrunarkonu þar barn samkvæmt frétt Daily Mail, sem greinir einnig frá því að við réttarhöld í barnsfaðernismáli árið 1999 hafi Murray viðurkennt að hafa átt það til að barna konur og yfirgefa þær svo. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Agnes var meira en bara morðingi Innlent Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Erlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Erlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Innlent Saka ríkisstjórnina um svik Innlent Fleiri fréttir Að minnsta kosti átján látnir eftir umfangsmiklar árásir „Antonio hefur með eigin augum séð byggingar hrynja“ Páfagarður bannfærir alla presta og fylgjendur bræðralagsins Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Verða líklega bannfærðir eftir vígslu gegn vilja páfa Þrettán látnir hið minnsta eftir stóra drónaárás Rússa Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Klifu á topp Empire State-byggingarinnar Þýska landsliðið spegli land stöðnunar Eldur braust út í fjölbýlishúsi og nokkrir eru látnir Mótmælendur í Suður-Afríku krefjast brottflutnings innflytjenda Úkraínumenn kaupa sextán Gripen E frá Svíþjóð Dæmdur í fangelsi fyrir að hrella fyrrverandi kærustu Börn sem fæðast í Bandaríkjunum áfram talin bandarísk Mega banna trans konum að stunda keppnisíþróttir Úkraínskur auðkýfingur særðist í sprengjutilræði í Mónakó Reiðin magnast í Venesúela Sjötti lést af sárum sínum á sjúkrahúsi Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Hátt í milljón sótt um dvalarleyfi á Spáni Sammælast um að bera klæði á vopnin Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Segir Ísraelsher hafa eyðilagt gangakerfi Hezbolla-samtakanna Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Sjá meira