Erlent

Þriggja ára barn greint með áfengissýki

Myndin er sviðsett og úr safni.
Myndin er sviðsett og úr safni.
Læknar hafa greint þriggja ára gamlan dreng með áfengissýki samkvæmt breska götublaðinu The Sun. Breskir læknar segja barnið þjást af alvarlegum skapgerðarsveiflum vegna áfengisneyslunnar.

Í fréttinni kemur fram að barninu var gefið áfengi yfir sex mánaða skeið meðal annars með þeim afleiðingum að hann skalf allur. Ekki kemur fram hversvegna, eða hver gaf barninu áfengi í fréttinni.

Málið er hið alvarlegasta enda yngsta barnið í Bretlandi, sem vitað er um, sem hefur greinst með áfengissýki. Afleiðingarnar geta haft alvarlegar afleiðingar fyrir þroska drengsins en erfitt er að spá til um það enn sem komið er að sögn lækna.

Læknirinn sem greindi drenginn sagði málið beinlínis hryllilegt. Barnið er eitt af þrettán börnum víðsvegar um Bretland sem hafa greinst með áfengissýki. Áður var greint frá því í sama blaði að átta ára stúlka hefði ánetjast áfengi með þeim afleiðingum að hún varð drukkinn allt að fjórum sinnum í viku.

Þess má geta að Egill Skallagrímsson, sem talinn er að hafi verið uppi á árunum 910 til 990, er sagður hafa byrjað að neyta áfengis þriggja ára gamall, en áfengisneyslan fór illa í hann, að mati föður hans, eins og frægt er orðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×