Toure fékk sex mánaða bann Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. maí 2011 20:42 Kolo Toure er hér fyrir miðri mynd. Nordic Photos / Getty Images
Kolo Toure, leikmaður Manchester City, var í dag dæmdur í sex mánaða bann fyrir að falla á lyfjaprófi. Toure missir því af upphafi næsta tímabils en Toure má byrja að spila aftur í byrjun september þar sem að bannið gildir frá 2. mars, er hann var fyrst settur í tímabundið bann. „Þetta hefur verið erfiður tími og mér finnst leitt að hafa misst af því þegar liðið tryggði sér sigur í enska bikarnum og keppnisrétt í Meistaradeild Evrópu,“ sagði Toure við enska fjölmiðla í dag. „Ég er þó feginn að ég megi byrja aftur í september og þakka enska knattspyrnusambandinu fyrir að sýna máli mínu skilning.“ Heimilt var að dæma Toure í tveggja ára bann en Toure játaði sök í málinu auk þess sem þetta var hans fyrsta brot. Toure tók inn megrunarlyf sem eiginkona hans átti og gerði sér ekki grein fyrir að það innihélt efni sem var á bannlista. Arsene Wenger, fyrrum stjóri Toure er hann var á mála hjá Arsenal, steig fram á sínum tíma og sagði að Toure hefði tekið lyfið til að hafa betri stjórn á eigin líkamsþyngd.
Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Króatía 29-30 | Aftur súrt tap gegn Króötunum hans Dags Handbolti Líkur Íslands á verðlaunum hafa snaraukist Handbolti Botna ekkert í Snorra: „Við erum teknir í bólinu“ Handbolti „Hann er sonur minn“ Fótbolti Svona var EM-Pallborðið: Allt sem þarf að vita fyrir stórleikinn í dag Handbolti „Hann gæti gert fullt af sóknum léttari“ Handbolti Besta sætið um sóknarleikinn: „Að mínu mati dugar þetta ekki til“ Handbolti „Tveggja ára barn að labba við sundlaugarbakkann og enginn gerði neitt“ Handbolti „Þurfum við ekki að fá fleiri varða bolta?“ Handbolti Elvar vildi ekki stela fjölskyldubílnum Handbolti Fleiri fréttir Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Sjá meira