Réðust á starfsmann meðferðarheimilis og struku 19. júlí 2011 19:57 Samkvæmt upplýsingum Vísis voru unglingsdrengirnir handteknir á gistiheimili á Akureyri í nótt. Mynd/Pjetur
Fjórir unglingsdrengir réðust á starfsmann á meðferðarheimilinu Háholti í Skagafirði síðastliðinn sunnudag. Því næst læstu þeir starfsmanninn inni, stálu peningum og struku á stolnum bíl. Frá þessu er greint á fréttavef Ríkisútvarpsins. Þar kemur fram að meiðsl starfsmannsins hafi verið minniháttar. Unglingsdrengirnir sem réðust á starfsmanninn í Háholti eru fæddir 1993 og 1995. Varðstjóri lögreglunnar á Akureyri sagði í samtali við Vísi að drengirnir hafi verið handteknir á gistiheimili á Akureyri í gær eða einum degi eftir að þeir struku. Þangað voru þeir sóttir af lögreglunni á Sauðárkróki. Tveir unglingsdrengjanna voru fluttir á Stuðla í Reykjavík. Að öðru leyti vísaði varðstjórinn á lögregluna á Sauðárkróki. Meðferðar- og skólaheimilið Háholt er einkarekið á grundvelli þjónustusamnings við Barnaverndarstofu. Tvö slík meðferðarheimili eru hér á landi en hið þriða ríkisrekið.Samstarf við Fangelsismálastofnun Í Háholti dvelja 15-18 ára unglingar og eru þeir kallaðir nemendur, samkvæmt heimasíðu Barnaverndarstofu. Þeir eiga það það sameiginlegt að eiga við alvarlegan hegðunarvanda að stríða. Nemendur hafa leiðst út í fíkniefnaneyslu, komist í kast við lögin, eiga í vandræðum í skóla og í félagslegum vanda af ýmsu tagi. Í einstaka tilvikum dvelja nemendur í Háholti sem dæmdir hafa verið til fangavistar. Samkvæmt samkomulagi Fangelsismálastofnunar og Barnaverndarstofu stendur unglingum til boða að afplána fangelsisdóm í Háholti.
Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ákærður fyrir að brjóta á börnum Erlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Fleiri fréttir Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Sjá meira