Tillögum Liverpool um skiptingu sjónvarpstekna mætt af mikilli andstöðu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. október 2011 22:00 John W. Henry, Ian Ayre og Damien Comolli eru hér saman á góðri stundu. Nordic Photos / Getty Images
Forráðamenn minni félaganna í ensku úrvalsdeildinni hafa margir lýst yfir mikilli óánægju sinni með ummæli Ian Ayre, framkvæmdarstjóra Liverpool, um skiptingu sjónvarpstekna. Ayre var í viðtali í The Times í gær og sagði að það væri ósanngjarnt að skipta sjónvarpstekjum sem aflað er utan Bretlands jafnt á milli liðanna í ensku úrvalsdeildinni. „Sá sem kaupir sér aðgang að sjónvarpsútsendingum ensku úrvalsdeildarinnar í Kuala Lumpur er mjög líklega stuðningsmaður Liverpool, Manchester United, Chelsea eða Arsenal,“ sagði Ayre. Hann vill meina að það sé ekki sanngjarnt að lið eins og Wigan eða Bolton fái jafn stóran hlut af þeirri köku og „stóru“ liðin í deildinni. „Ég er nýbúinn að lesa ummæli Ayre og finnst þau djöfulleg,“ sagði Dave Whelan, stjórnarformaður Wigan. „Ég bara trúi því ekki að hann hafi sagt þetta.“ The Mirror fullyrðir svo í dag að forráðamenn liða eins og Chelsea, Arsenal, Manchester City og Manchester United styðji núverandi fyrirkomulag um skiptingu sjónvarpstekna og hafi ekki áhuga á að breyta því. Því er þó haldið fram í The Guardian að Glazer-fjölskyldan, eigandi Manchester United, hafi í raun íhugað að taka þennan slag með John Henry, eiganda Liverpool. Þess má svo geta að spænsku stórliðin Real Madrid og Barcelona eiga sjálf sjónvarpsréttinn að sínum heimaleikjum og sjá sjálf um sölu á honum til sjónvarpsstöðva víða um heim. Roberto Martinez, stjóri Wigan, segir það ekki til eftirbreytni. „Sú skipting hefur ekki virkað á Spáni,“ sagði Martinez sem sjálfur er Spánverji. „Real Madrid og Barcelona verða bara ríkari og ríkari og það verður erfiðara fyrir önnur lið að keppa við þau eftir því sem árin líða. Skipting er frábær fyrir þessi tvö lið en er slæm fyrir deildina.“
Mest lesið „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti Frikki Dór segir stöðu Bjarkar galna en bærinn lofar að verja starfið Sport Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Handbolti Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Fótbolti „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Handbolti Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ Fótbolti Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Fótbolti „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Fótbolti City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Enski boltinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Handbolti Fleiri fréttir Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Sjá meira