Auknar kvaðir gætu verðfellt bújarðir 11. mars 2011 03:15 Magnús Leopoldsson
Í sveitinni Magnús Leopoldsson fasteignasali deilir ekki þeirri skoðun með sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að gildandi jarðalög séu ógn við matvælaöryggi í landinu og aftri nýliðun í bændastétt. Í ræðu á Búnaðarþingi boðaði Jón Bjarnason breytingar á jarðalögum, „einkum til að formfesta skynsamlega landnýtingu með tillti til fæðuöryggis þjóðarinnar.“ Sagði hann Íslendinga hafa horft aðgerðarlausa á bestu bújarðirnar í frjósömustu sveitunum teknar úr ræktun og jafnvel gerðar ónýtanlegar til matvælaframleiðslu. „Tryggja þarf ábúð á bújörðum og að landbúnaðarland sé nýtt af skynsemi...,“ sagði hann og vék að mikilvægi nýliðunar í stéttinni. Magnús Leopoldsson, sem hefur annast jarðasölu um árabil, telur bújarðakaup fólks utan bændastéttar í engu ógna matvælaöryggi. Bújarðir séu margar og að auki alsiða að þeir sem ekki nýti tún feli þau bændum til nýtingar. Þá geti hörgull á jarðnæði ekki verið ástæða lítillar nýliðunar í landbúnaði. „Þar ráða aðrir þættir. Það hefur verið erfitt fyrir ungt fólk að byrja búskap svo lengi sem ég man. Það kostar nefnilega peninga að hefja búskap eins og gildir um allan annan atvinnurekstur.“ Aðspurður segir Magnús að bújarðir gætu hæglega fallið í verði með auknum kvöðum. Bændum sé lítill greiði gerður með því að ríkisvaldið verðfelli jarðir þeirra. Á hitt beri að líta að land á Íslandi sé mjög ódýrt. „Mér er sagt að land hér sé á svipuðu verði og í Moldavíu. Land er sumsé hvergi í heiminum ódýrara en hér. En fasteignirnar utan um matvælaframleiðsluna kosta sitt.“ Magnús segir gott að málefni landbúnaðar og jarðnæðis séu tekin til skoðunar enda blasi við margs konar vandamál. Hann trúi þó ekki að bændum verði gert erfiðara fyrir en nú er að selja jarðir sínar. - bþs
Mest lesið Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Innlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Innlent Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Erlent Fleiri fréttir Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Sjá meira