Ari Edwald: Gillz fer ekki í loftið á meðan málið er í athugun 5. desember 2011 10:55 Ari Edwald. „
Hann fer ekki í loftið á meðan málið er í athugun," svarar Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, spurður hvort Egill Gillzenegger Einarsson, muni skemmta landanum á vegum 365 miðla eftir að hann og unnusta hans voru kærð fyrir nauðgun í síðustu viku. Egill var nafngreindur opinberlega á Eyjunni.is fyrir helgi. Áður hafði DV greint frá því að par hefði verið kært fyrir nauðgun. Agli er gefið að sök að hafa ásamt unnustu sinni þvingað rétt rúmlega átján ára stúlku til kynferðismaka. Egill neitar ásökunum samkvæmt yfirlýsingu sem hann sendi frá sér á föstudaginn. Á sama tíma og Egill var nafngreindur sat hann fyrir svörum í skemmtiþættinum Spurningabombunni á Stöð 2 og fyrr sama dag skemmti hann útvarpshlustendum í þættinum FM 957BLÖ. Þess má geta að báðir þættirnir voru teknir upp áður en meint nauðgun á að hafa átt sér stað. Ari segir að strax eftir að það kom í ljós að Egill hefði verið kærður fyrir nauðgun hafi verið tekin sú ákvörðun að hann myndi ekki birtast í afþreyingahluta fyrirtækisins. Þegar er búið að taka upp framhald af þáttaröðinni Mannasiðir Gillz, en að sögn Ara stóð til að sýna þættina næsta haust. Hann segir enga ákvörðun hafa verið tekna um framtíð þeirra þátta. Spurður hvort þættirnir verði mögulega sýndir verði Gillz fundinn saklaus af málinu, svarar Ari því til að það sé of snemmt að segja til um það. „Annars finnst mér þessir þættir léttvægt mál í samhengi við alvarleika málsins," segir Ari að lokum.
Tengdar fréttir Drífa Snædal: Hrósar stúlkunni sem kærði Gillz fyrir hugrekki Drífa Snædal, fyrrverandi fræðslustýra hjá Samtökum um Kvennaathvarf segir í pistli sínum á vefmiðlinum Smugunni að stúlkan sem hefur kært Egil Einarsson og kærustu fyrir nauðgun, eigi hrós skilið. 2. desember 2011 23:06 Par kært fyrir nauðgun - segir kærustuna hafa horft upp á ofbeldið Par hefur verið kært fyrir nauðgun í heimahúsi á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku. Fórnarlambið er átján ára stúlka. Lögregla er með málið til rannsóknar en samkvæmt heimildum fréttastofu hefur parið einnig kært stúlkuna fyrir rangar sakargiftir. Maðurinn var yfirheyrður í dag. 2. desember 2011 19:25 Gillz kærður fyrir nauðgun Egill Einarsson, kallaður Gillzenegger, hefur verið kærður fyrir nauðgun. Það er Eyjan.is sem greinir frá þessu. 2. desember 2011 20:40 Gillz segir nauðgunarásakanir fráleitar Egill Einarsson, eða Gillzenegger, segir ásakanir um nauðgun fráleitar og eingöngu til þess fallnar að sverta mannorð sitt. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Egill sendi Vísi fyrir stundu. 2. desember 2011 21:02 Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik Innlent Fleiri fréttir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Sjá meira
Drífa Snædal: Hrósar stúlkunni sem kærði Gillz fyrir hugrekki Drífa Snædal, fyrrverandi fræðslustýra hjá Samtökum um Kvennaathvarf segir í pistli sínum á vefmiðlinum Smugunni að stúlkan sem hefur kært Egil Einarsson og kærustu fyrir nauðgun, eigi hrós skilið. 2. desember 2011 23:06
Par kært fyrir nauðgun - segir kærustuna hafa horft upp á ofbeldið Par hefur verið kært fyrir nauðgun í heimahúsi á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku. Fórnarlambið er átján ára stúlka. Lögregla er með málið til rannsóknar en samkvæmt heimildum fréttastofu hefur parið einnig kært stúlkuna fyrir rangar sakargiftir. Maðurinn var yfirheyrður í dag. 2. desember 2011 19:25
Gillz kærður fyrir nauðgun Egill Einarsson, kallaður Gillzenegger, hefur verið kærður fyrir nauðgun. Það er Eyjan.is sem greinir frá þessu. 2. desember 2011 20:40
Gillz segir nauðgunarásakanir fráleitar Egill Einarsson, eða Gillzenegger, segir ásakanir um nauðgun fráleitar og eingöngu til þess fallnar að sverta mannorð sitt. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Egill sendi Vísi fyrir stundu. 2. desember 2011 21:02