Manchester City kjöldró Notts County í bikarnum 20. febrúar 2011 16:03 Patrick Viera skoraði tvö mörk fyrir City í dag. / Mynd: Getty Images
Manchester City gjörsamlega rústaði Notts County í fimmtu umferð enska bikarsins í dag. Heimamenn skoruðu þrjú mörk á sjö mínútna kafla í lokin, en fyrir það höfðu leikmenn Notts County barist eins og ljón. Patrick Viera skoraði tvö mörk fyrir Man. City og þeir Carlos Tevez, Edin Dzeko og Micah Richards skoruðu eitt mark hver. Það munaði 59 sætum á liðunum fyrir leik liðanna í ensku bikarkeppninni í dag en Manchester City eru í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar og Notts County í 18. sæti ensku 1. deildarinnar. Leikmenn Notts County byrjuðu leikinn vel en það voru þeir sem fengu fyrsta færi leiksins. Eftir um tuttugu mínútna leik átti Karl Hawley, leikmaður Notts County, virkilega gott skot í innanverða stöngina. Heimamenn í Manchester City vöknuðu heldur betur til lífsins eftir stangarskotið og náðu föstum tökum á leiknum. Reynsluboltinn Patrick Viera, leikmaður Manchester City, skoraði fyrsta mark leiksins á 37. mínútu þegar hann skallaði boltann í netið, en markið kom eftir hornspyrnu frá David Silva. Patrick Viera var síðan aftur á ferðinni á 58. mínútu þegar hann skoraði aftur með skalla eftir hornspyrnu frá Aleksandar Kolarov. Þessi margreyndi Frakki sýndi það í dag að hann hefur engu gleymt og er að reynast virkilega mikilvægur fyrir Manchesterliðið. Varamaðurinn Carlos Tevez skoraði þriðja mark heimamanna fimm mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma. Tevez lék sérlega vel á markmann Notts County og skorað í autt markið. Manchester City skoraði fjórða mark leiksins á 90. mínútu leiksins þegar Edin Dzeko skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Carlos Tevez. Manchester City innsiglaði síðan virkilega þægilegan sigur á fyrstu mínútu uppbótartímans en það var enginn annar en Micah Richards sem skoraði fimmta mark City með laglegu skoti inn í vítateignum. Manchester City eru því komnir áfram í 8-liða úrslit enska bikarsins eftir að hafa keyrt yfir Notts County 5-0.
Enski boltinn Mest lesið Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Handbolti Bakgarðsáskorun: Stefnir hátt í síðasta Bakgarðshlaupinu sínu Sport Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Mun skilja sál mína eftir í búrinu“ Sport „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Enski boltinn Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira