Stórmeistarajafntefli á Anfield 15. október 2011 11:01
Javier Hernandez bjargaði stigi fyrir Man. Utd gegn Liverpool á Anfield í dag. Lokatölur 1-1 í leik þar sem Liverpool var sterkari aðilinn lengstum og ekki fjarri því að taka öll stigin. Uppstilling Man. Utd vakti talsverða athygli. Ferguson setti Rooney og Hernandez á bekkinn og Phil Jones var mættur á miðjuna. Hjá Liverpool var Steven Gerrard í byrjunarliði félagsins í fyrsta skipti í hálft ár. Allar þessar breytingar hjá United gerðu það að verkum að liðið náði ekki neinum takti í sinn leik. Liverpool stýrði ferðinni en gekk illa að skapa færi. Eina alvöru færi fyrri hálfleiks fékk Luis Suarez en David de Gea varði vel. Þegar rúmar 20 mínútur voru eftir af leiknum dró loksins til tíðinda. Liverpool fékk þá aukaspyrnu rétt fyrir utan teig. Aukaspyrnan afar ódýr enda virtist Rio Ferdinand ekki snerta Charlie Adam. Gerrard tók aukaspyrnuna. Miðaði á Ryan Giggs í veggnum sem var góð ákvörðun enda færði Giggs sig frá boltanum sem söng í horninu. De Gea varnarlaus en Giggs fær eflaust að heyra það frá stjóranum og jafnvel fleirum. Svona sést bara ekki á hverjum degi. Þá ákvað Ferguson loksins að sleppa Rooney og Nani inn á völlinn. Þeir höfðu 20 mínútur til þess að bjarga málunum fyrir meistarana sem höfðu ekki gert nokkurn skapaðan hlut í leiknum. Skömmu síðar kom Hernandez af bekknum og eina ferðina enn kom hann United til bjargar. Litli Mexíkóinn stangaði boltann í netið eftir hornspyrnu er tíu mínútur lifðu leiks. Slök dekkning hjá Skrtel og verkefnið auðvelt hjá Chicharito. Aðeins mínútu síðar komst Dirk Kuyt í dauðafæri en De Gea varði frábærlega. Mikið fjör undir lokin eftir heldur leiðinlegan leik framan af. Jordan Henderson var ekki fjarri því að skora sigurmarkið á 90. mínútu. Hann átti þá lúmskt skot utan teigs en aftur varði De Gea vel. Í kjölfarið myndaðist mikil pressa við mark United en gestirnir sluppu með skrekkinn.
Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Scheffler tryggði sér 1.200 milljónir og toppaði Tiger Golf Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Enski boltinn Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ Íslenski boltinn „Eiður hefur verið fyrirmyndin mín síðan ég var krakki“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Sjá meira