Fimm manns dvelja á réttargeðdeildinni Jón Hákon Halldórsson skrifar 2. desember 2011 11:31 Fimm manns dvelja á réttargeðdeildinni sem nú er staðsett á Sogni.
Fimm manns dveljast nú á réttargeðdeildinni að Sogni, allt karlmenn. Þeir eru á aldrinum 25-45 ára og er meðalaldurinn 31 ár. Þeir sjúklingar sem þar dveljast eru undir nánu eftirliti göngudeildar réttargeðdeildarinnar á Kleppi. Þetta kom fram í máli Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra í sérstakri umræðu um málefni ósakhæfra brotamanna sem fram fór á Alþingi í morgun. Það var Álfheiður Ingadóttir, þingmaður VG, sem tók umræðuna upp. Hún spurði hvernig réttindi ósakhæfra fanga væru tryggð og hvernig öryggis almennings væri gætt. Hún sagði að málefni ósakhæfra brotamanna hefði verið í miklum ólestri allt þar til réttargeðdeildin Sogn var sett á fót árið 1991. Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, tók jafnframt þátt í umræðunum. Hann sagði að þessi hópur manna ættu sér fáa málsvara. Það gæti ef til vill að hluta til skýrt hvers vegna málefni þessa hóps hefði verið í svo miklum ólestri í svo langan tíma. „Menn verða að spyrja sig að því hvað er hægt að gera betur, faglega og fjárhagslega. Ákvarðanir í þessum efnum verða menn að taka af yfirvegun og af varfærni, vegna þess um hversu viðkvæman málaflokk er að ræða,“ sagði Birgir. Eins og fram hefur komið stendur til að loka réttargeðdeildinni að Sogni og að deildin starfi í framtíðinni á Kleppi. Björgvin G Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, og Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, lögðu áherslu á það að starfsemi réttargeðdeildarinnar hefði reynst vel. „Þess vegna verða að liggja mjög máttugar forsendur fyrir því að breyta því fyrirkomulagi sem svo vel hefur reynst,“ sagði Björgvin G. Sigurðsson.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira