Hvassaleitisskóli oftast hæstur 11. desember 2011 21:30 Mynd tengist frétt ekki beint
Skólar á Vestfjörðum stóðu sig hvað verst á samræmdum könnunarprófum í haust. Fellaskóli var með lægstu meðaltölin í flestum greinum en Hvassaleitisskóli er oftast hæstur. Samræmd könnunarpróf eru þreytt í fjórða, sjöunda og tíunda bekk en einkunnir höfðu hingað til einungis verið gefnar út eftir sveitafélögum en nú hefur námsmatsstofnun birt meðaltöl einstakra skóla þar sem ellefu eða fleiri nemendur tóku prófin. Einkunnirnar eru normaldreifðar þannig að meðaltal í hverri grein er alltaf þrjátíu. Skólar sem eru yfir þeirri einkunn eru þá yfir meðaltali en skólar sem eru með lægra en þrjátíu eru undir meðaltali. Samkvæmt niðurstöðum í tíunda bekk í íslensku og stærðfræði eru flest landssvæði með í kringum þrjátíu í einkunn. Vestfirðir skera sig þar hins vegar úr en þar voru skólarnir að meðaltali með 26. Þess ber þó að geta að einungis tveir skólar standa á bak við það meðaltal. Þá er Fellaskóli í Reykjavík oftast neðstur eða í íslensku og stærðfræði í 4.bekk, og stærðfræði í tíundabekk. Enginn skóli er afgerandi efstur á lista en Hvassaleitisskóli er efstur bæði í íslensku í 7.bekk og ensku í tíunda bekk. Lægstu meðaleinkunn fær Auðarskóli í Búðardal en hann er með 16,8 í ensku í tíundabekk en fimmtán nemendur þreyttu prófið. Þegar litið er einungis á niðurstöðu í stærðfræði og íslensku í tíundabekk er Flóaskóli efstur í íslensku, Grunnskóli Bláskógabyggðar í öðru sæti og Háteigsskóli í því þriðja. Í neðstu sætunum er hins vegar að finna Klébergsskóla með einkunnina 20,5 og því næst Fellaskóla og Tjarnarskóla með um 22. Efstur í stærðfræði er Álftamýrarskóli og þar á eftir koma Lindaskóli og Flóaskóli, allir með yfir 36 í meðaleinkunn. Lægstur í stærðfræði er eins og áður segir Fellaskóli en á eftir honum koma Grunnskólinn á Eskifirði og Auðarskóli í Búðardal. Þess má geta að í minni bæjarfélögum eru oft fáir nemendur sem standa að baki hverri meðaleinkunn og því oft um miklar sveiflur að ræða á milli ára.
Mest lesið „Ætlum að sækja að olíufélaginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ Innlent Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson Innlent Krefst sýknu í öllum ákæruliðum: „Hún ætlaði aldrei að snúa aftur“ Innlent Ýtukarl á áttræðisaldri er enn að bæta vegina Innlent Fara fram á sextán ár yfir Ming: „Ásetningur hennar var kaldur og grimmur“ Innlent Hótanir nægi ekki til að bregðast við utan landhelgi Innlent Vigdís kíkti í kaffi til Kristrúnar Innlent „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent Tvö hundruð prósent fleiri tilkynningar um vændi Innlent Dræm laxveiði: „Menn spá ekki nema spáin sé góð“ Innlent Fleiri fréttir Stefnt á kappræður milli utanríkisráðherra Traust til íslenskra yfirvalda sagt fara vaxandi Synjun Suðurlandsbrautar gæti tafið fyrstu lotu Borgarlínu „Þú verður að hafa stjórn á tækninni sem þú nýtir“ Krefst sýknu í öllum ákæruliðum: „Hún ætlaði aldrei að snúa aftur“ Aðalmeðferð að ljúka í Edition málinu og sextán ára fangelsis krafist Hótanir nægi ekki til að bregðast við utan landhelgi Fara fram á sextán ár yfir Ming: „Ásetningur hennar var kaldur og grimmur“ Dræm laxveiði: „Menn spá ekki nema spáin sé góð“ Tvö hundruð prósent fleiri tilkynningar um vændi „Ætlum að sækja að olíufélaginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara til Persónuverndar Lýsa yfir þungum áhyggjum af notkun gervigreindar við tónlistarsköpun Ýtukarl á áttræðisaldri er enn að bæta vegina Með kylfur og mikið magn vímuefna Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson Segir ekki tilefni til að endurskoða lyfjaakstursmál síðustu ára Vigdís kíkti í kaffi til Kristrúnar Varamaður á Ísafirði verður sveitarstjóri Súðavíkur Orðinn Háskóli Íslands á Hólum Gagnrýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar „Ekkert sérstaklega ánægð“ þegar hún sá hnífinn Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri á Suðurnesjum „Við verðum bara að horfast í augu við smæð okkar“ Lokar fyrir aðgengi að Reykjafossi og Fossalaug Gagnrýnir Landhelgisgæsluna vegna Bandero og ýtukarl á áttræðisaldri „Allir eru reiðubúnir að hætta á handtöku“ Fósturfaðirinn áfram í gæslu Leiðrétta rangar kröfur um kílómetragjald af seldum bílum Sjá meira