Lokað á Karen Millen eftir kápuleik 7. desember 2011 06:00 Facebook lokar á fyrirtæki sem stunda leiki á síðum sínum þar sem notendur geta unnið varning með „like“ og „kvitt“. fréttablaðið/Valli
Lokað var fyrir Facebook-síðu Karen Millen á Íslandi fyrir um þremur dögum. Forsvarsmenn samfélagsnetsins segja ástæðuna vera kápuleikinn svokallaða, sem fór sennilega ekki framhjá mörgum notendum í lok síðasta mánaðar. Fyrirtækið fékk um 2.500 „like“ á síðuna sína á einum degi þegar leikurinn fór af stað. Fréttablaðið greindi frá því í lok nóvember að leikir á Facebook þar sem notendur eiga að ýta á „like“, „kvitta“ á veggi og deila myndum frá fyrirtækjum til þess að vinna vörur eða þjónustu væru skýrt brot á notendareglum Facebook. Þau fyrirtæki sem setja slíka leiki í gang eiga á hættu að lokað verði fyrir síðurnar þeirra. Hulda Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri Karen Millen á Íslandi, er enn í viðræðum við markaðsdeild Facebook og veit ekki fyrir víst hver staðan er. „Síðan er fryst,“ segir Hulda. „Við erum enn í viðræðum við Facebook og ég vona bara að þeir opni fyrir hana aftur. Mér finnst það frekar hart ef þeir ætla að gera okkur að fordæmi.“ Hulda þekkir dæmi þar sem síður hafa verið lokaðar í nokkra daga og svo opnaðar aftur. Hún segist nú vera að bíða eftir svari frá Facebook, en ef til þess komi að síðunni verði eytt endanlega muni hún bara opna aðra. Smartland Mörtu Maríu á mbl.is stóð fyrir svipuðum leik og Karen Millen á dögunum. Þar stóð notendum til boða að „kvitta“ á vegg Smartlands á Facebook og þeir gætu þar með unnið „hrukkubana“ frá Lancome. Eins og áður sagði eru leikir sem þessir skýr brot á reglum Facebook og getur því Smartland átt von á því að lokað verði fyrir Facebook-síðu þess, þó að vissulega hafi hrukkubanaleikurinn ekki náð jafn mörgum „like“ og kápuleikur Karen Millen.- sv
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira