Rektor hafnar gagnrýni lífrænna bænda 7. desember 2011 03:30 Starfsemi ORF í hátæknigróðurhúsinu Grænu smiðjunni í Grindavík hefur fyrir löngu sprengt utan af sér. mynd/orf
Verndun og ræktun (VOR) gagnrýna harðlega þau áform Landbúnaðarháskólans að leigja sérbyggt gróðurhús skólans að Reykjum í Ölfusi til ræktunar á erfðabreyttum lyfjaplöntum. VOR telur að með þessu sé skólinn að fara „alvarlega út fyrir hlutverk sitt og þá meginskyldu að styðja við og efla sjálfbæran landbúnað og matvælaframleiðslu á Íslandi“. Þetta kemur fram í bréfi sem VOR, sem er félag framleiðenda í lífrænum búskap, hefur sent Ágústi Sigurðssyni, rektor Landbúnaðarháskólans, en þar kemur eins fram það sjónarmið að með því að leigja húsið sé verulega dregið úr möguleikum skólans til að stunda rannsóknir sem ýtt geti undir nýsköpun og þróun tækifæra fyrir ræktendur á Íslandi. Ágúst segir gagnrýni VOR á leigu gróðurhússins ekki eiga sér neina stoð. „Við erum með mjög fullkomið gróðurhús að Reykjum, og í því eru níu hólf eða klefar. Þeim er öllum hægt að stýra og vinna með einangruð garðyrkjuverkefni. Það sem stendur til að leigja ORF er aðeins einn þessara klefa, svo átta nýtast skólanum áfram. Það er langt frá því að allt gróðurhúsið fari undir þetta. Ástæðan fyrir leigunni er sú að stundum leigjum við út klefa til skamms tíma fyrir verkefni sem tengjast okkur. Þetta er dæmi um slíkt verkefni.“ VOR segir jafnframt í bréfinu að ummæli og skrif starfsmanna skólans lýsi „fádæma vanþekkingu og vanþóknun á lífrænum búskaparháttum“ og skólinn þurfi að skýra afstöðu stofnunarinnar og fyrirætlanir í kennslu og rannsóknum í þágu lífrænna búskaparhátta. Ágúst segir að lífræn ræktun sé ekki hornreka í starfi skólans eins og gefið sé í skyn en það sé eðli háskólastarfs að fólk hafi ólíkar hugmyndir og rökræði á þeim forsendum. „Fólk er ekki sammála og þetta er dæmi um mál sem mikið er rætt. Hvað lífræna ræktun varðar greinir fólk, held ég, ekki á um takmarkið: umgangast náttúruna með sjálfbærum hætti og lágmarka áníðslu á okkar jörð. Hins vegar á annað við um leiðir.“ Skólinn hyggst leigja ORF Líftækni húsið, en ORF ræktar erfðabreytt bygg sem nýtt er meðal annars til framleiðslu á snyrtivörum. Gróðurhúsið að Reykjum var byggt 2001 til rannsókna og þróunarstarfs fyrir garðyrkjubændur. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent Foksandur og rykagnir búa í þokunni Innlent Sigríður Björk aftur færð til Innlent Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Innlent Einn handtekinn í umfangsmikilli lögregluaðgerð á Akureyri Innlent Fleiri fréttir Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Einn handtekinn í umfangsmikilli lögregluaðgerð á Akureyri Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Sjá meira
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent