Erlent

Bannað að prumpa á almannafæri

Frumvarpið verður lagt fyrir þingið í næstu viku
Frumvarpið verður lagt fyrir þingið í næstu viku
Nýtt frumvarp verður lagt fyrir þingið í borginni Blantyre í Malaví í næstu viku. Frumvarpið er eflaust með því óvenjulegasta sem hefur verið lagt fyrir þingið því ef það verður samþykkt verður bannað að leysa vind á opinberlegum stöðum.

Íbúar í borginni eru ekki sáttir með frumvarpið sem verður lagt fyrir þingið í næstu viku. Í frumvarpinu segir að sá einstaklingur sem spillir andrúmsloftinu á opinberlegum stað með því að leysa vind sem skaði aðra einstaklinga, skuli verða dæmdur sekur um slæma hegðun.

Matthews Phiri, nemi í borginni, segir að allir leysi vind. „Og það mun vera erfitt fyrir stjórnvöld að fylgjast með þessu og sanna sekt viðkomandi því sumir leysa vind í hljóði. Stundum leysir einhver vind þar sem heyrist bara shhhh."

Hann segir jafnframt að þingmennirnir eigi að einbeita sér að öðrum mikilvægari málum, til dæmis þróunarverkefnum. „Þeir ættu að sjá sóma sinn í að verja tíma sínum og peningum okkar í annað en svona barnalegt málefni," segir Phiri og er ekkert bjartsýnn. „Þetta mun ekki ganga upp. Við munum halda áfram að prumpa," segir hann að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×