Leita leiða til bjargar evrunni 24. júní 2011 06:45 Georgios Papandreú Forsætisráðherra Grikklands kemur á leiðtogafundinn í Brussel. Fréttablaðið/AP
Fjárhagsvandi Grikkja skyggði á öll önnur mál á leiðtogafundi Evrópusambandsins sem hófst í Brussel í gær. Mestur tíminn fór í að leita leiða til að forða Grikkjum undan gjaldþroti og bjarga evrunni, hinni sameiginlegu mynt sautján Evrópusambandsríkja. Beðið er ákvarðana frá Grikklandi, þar sem stjórnvöld reyna enn að afla sér stuðnings þingsins við óvinsælar aðhaldsaðgerðir, sem fela í sér bæði skattahækkanir og niðurskurð á ríkisútgjöldum. Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna áttu meðal annars fund í Brussel með Antonis Samaras, leiðtoga grísku stjórnarandstöðunnar, sem hefur tekið afar illa í aðhaldsaðgerðir stjórnarinnar. „Það er mjög mikilvægt að enginn stjórnmálaleiðtogi í Grikklandi segi grísku þjóðinni að hún geti stytt sér leið,“ sagði Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, þegar hann kom til fundarins í Brussel í gær. Samaras gaf hins vegar ekkert tilefni til bjartsýni um að almenn samstaða næðist á gríska þinginu. Angela Merkel Þýskalandskanslari sagðist ekki eiga von á að neinar afgerandi ákvarðanir um Grikkland yrðu teknar á leiðtogafundinum, sem heldur áfram í dag.- gb
Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Fleiri fréttir Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Sjá meira