Modric segir að stjórnarformaður Tottenham hafi beitt hótunum 11. júlí 2011 14:00 Króatíski landsliðsmaðurinn Luka Modric heldur því fram að David Levy stjórnarformaður enska úrvalsdeildarliðsins Tottenham hafi haft í hótunum við sig Nordic Photos/Getty Images
Króatíski landsliðsmaðurinn Luka Modric heldur því fram að David Levy stjórnarformaður enska úrvalsdeildarliðsins Tottenham hafi haft í hótunum við sig. Modric hefur lýst því yfir að hann vilji komast frá Tottenham. Levy er allt annað en ánægður með þá ákvörðun leikmannsins. Modric segir að Levy hafi hótað því að hann fengi ekkert að spila með félaginu ef hann sætti sig ekki við þá ákvörðun félagsins að setja hann ekki á sölulista. Modric, sem er 25 ára gamall miðjumaður, hefur verið orðaður við Chelsea. Talið er að Chelsea hafi boðið um 22 milljónir punda í leikmanninn eða sem nemur um 4 milljörðum kr. Modric segir í viðtali við króatíska dagblaðið Sportske Novosti að hann hafi gert „heiðursmannasamkomulag“ við Levy þegar hann skrifaði undir nýjan samning við Tottenham. „Á þeim tíma ræddi ég við Levy um þann möguleika að ef stærra félag vildi kaupa mig þá myndum við skoða það og vinna úr því með opnum huga. Í dag vill Levy ekki ræða við mig, og hann segir að það komi ekki til greina að ég geti farið frá Tottenham. Hann hefur hótað mér og sagt að ég verði uppi í stúku eða á varamannabekknum ef ég sætti mig ekki við ákvörðun félagsins,“ sagði Modric en hann vonast til þess að félagið nái samkomulagi við Chelsea og það er greinilegt að Modric hefur engan áhuga á að leika fyrir Tottenham á næstu leiktíð.
Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn Danmörk - Portúgal | Lífið án Ronaldos Fótbolti „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira