Hörð átök í Egyptalandi Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 20. nóvember 2011 18:30
Til harðra átaka kom þegar óeirðarlögregla reyndi að fjarlægja mótmælendur af Frelsistorginu í Kaíró í dag. Þúsundir Egypta höfðu þá safnast saman á torginu annan daginn í röð. Hundruð her- og lögreglumanna mættu á brynvörðum bílum vopnaðir táragasi og gúmmíkúlum á Frelsistorgið til að hrekja burt þúsundir mótmælenda sem þar voru samankomnir. Talið er að um fimm þúsund mótmælendur hafi verið á torginu. Þeir vilja að kosningar verði haldnar í landinu sem fyrst og að lýðræðislega kjörin stjórn taki við völdum. Síðan að Hosni Mubarak, fyrrum forseti landsins, var hrakinn úr embætti fyrir níu mánuðum síðan hefur herinn stjórnað landinu. Þetta er annar dagurinn í röð sem mótmælendur safnast saman á torginu. Til átaka kom einnig í nótt þegar her- og lögreglumenn reyndu að hrekja burt hóp fólks sem þar var samankomið. Þeir kveiktu bæði í tjöldum mótmælenda og brenndu borða. Talið er að um áttahundruð manns hafi særst í átökunum síðustu tvo sólarhringa. Þá hefur lögreglan handtekið á sjötta tug manna. Átökin þykja endurspegla mikla reiði almennings vegna þess hve langan tíma umbætur í landinu þykja taka svo og því að herforingjastjórnin virðist treg til að láta af völdum. Þrátt fyrir að stjórnin hafi ítrekað lýst því yfir að almennar kosningar verði haldnar hefur hún verið ófáanleg til að gefa upp um hvenær það verður.
Mest lesið Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Innlent Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Viðskipti innlent Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Innlent Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Innlent Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Erlent Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Erlent Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Innlent Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Innlent Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Fleiri fréttir Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Vanræksla við hönnun, vottun, viðhald og skoðun Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Hollendingar kaupa vopn af Bandaríkjunum fyrir Úkraínumenn Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Neitað um lausn gegn tryggingu Bolsonaro í stofufangelsi Danskur dýragarður óskar eftir gæludýrum til að fóðra rándýrin Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Tæplega þrjátíu drepin á meðan þau biðu eftir mat Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Tugir drukknuðu og margra enn saknað Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Rússneskt eldfjall gýs í fyrsta sinn í sex hundruð ár Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Leiddi fordæmalausa bænastund á Musterishæð Eldur í olíugeymslu í Sochi eftir drónaárás Reiður Trump segir Schumer að fara til helvítis Grunaður um að myrða heila fjölskyldu en skilja ungabarnið eftir á lífi Beinaber gísl látinn grafa eigin gröf á Gasa Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum „Fordæmalaus hitabylgja“ leikur Skandínava grátt Maxwell flutt í þægilegra fangelsi Breyti engu á jörðu niðri að viðurkenna sjálfstæði Palestínu Trump ræsir út kjarnorkukafbáta eftir „ögrandi“ ummæli Rússa Sjá meira