Tevez ætlaði að skrópa á sigurhátíð Man. City í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. maí 2011 13:30 Carlos Tevez lyfti enska bikarnum. Mynd/AP
Forráðamenn Manchester City vöruðu Carlos Tevez við því að hann verði sektaður ákveði hann að skrópa í sigurhátið Manchester City í dag. Tevez var í gærkvöldi búinn að bóka flug heim til Argentínu í dag. Carlos Tevez er fyrirliði Manchester City og tók við bikarmeistaratitlinum fyrir níu dögum. City-menn ætluðu að setja bikarafhendinguna aftur á svið í miðborg Manchester í dag til þess að leyfa þeim stuðningsmönnum, sem komust ekki til Wembley, að upplifa þessa risastóru stund í sögu félagsins. Tevez liggur mikið á að komast heim til dætra sinna Florenciu og Katiu sem búa í Buenos Aries hjá fyrrum kærustu hans, Vanessu. Tevez hefur mikið talað um það að hann vilji búa nær fjölskyldu sinni og er það ein aðalástæða fyrir óánægju hans hjá City. Nú verða City-menn að láta varafyrirliðann Vincent Kompany lyfta bikarnum eða hætta alveg við þessa bikarafhendingu. Forráðamenn City gerðu allt til þess að reyna að fá Tevez til að mæta í dag. Þeir sendu meðal annars tvö bréf til Tevez, eitt á ensku og eitt á spænsku, til þess að vera öryggir um að hann kenndi ekki tungumála-misskilningi um að hann skrópaði í sigurhátíðinni. Tevez ætlar líka að nota ferðina til Buenos Aries til að reyna að sannfæra Vanessu um að flytja til Ítalíu eða Spánar en hún fann sig aldrei á Englandi enda talar hún bara spænsku. Tevez ætlar þá að gera sitt í því að reyna að komast til Real Madrid eða Internazionale.
Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Vill gera breytingar en liðsstjórinn er ekki vandamálið Formúla 1 Viktor Gísli fékk silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira