Aron Einar skoraði í tapleik Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. október 2011 21:16 Aron Einar Gunnarsson, til vinstri, í leik með Cardiff. Nordic Photos / Getty Images
Aron Einar Gunnarsson skoraði í kvöld sitt fyrsta mark fyrir enska B-deildarliðið Cardiff en það dugði ekki til þar sem að liði tapaði fyrir Peterborough á útivelli, 4-3. Aron Einar kom sínum mönnum í 3-2 forystu á 79. mínútu en leikmenn Peterborough skoruðu tvívegis á síðustu fimm mínútum leiksins og tryggðu sér þar með sigurinn. Aron Einar lék allan leikinn en markið skoraði hann eftir stungusendingu inn fyrir vörn heimamanna. Brynjar Björn Gunnarsson var á bekknum hjá Reading þegar að liðið gerði 2-2 jafntefli við Derby. Ívar Ingimarsson var ekki í leikmannahópi Ipswich sem vann 1-0 sigur á Portsmouth á sama tíma. Hermann Hreiðarsson, leikmaður Portsmouth, er frá vegna meiðsla, rétt eins og Ívar. Southampton kom sér í þægilega stöðu á toppi deildarinnar eftir 1-0 sigur á West Ham sem er í öðru sæti og nú fimm stigum á eftir Southampton. Middlesbrough og Derby eru einnig með 21 stig, rétt eins og West Ham, en báðum liðum mistókst að vinna sína leiki í kvöld. Ipswich er í sjötta sætinu með 20 stig, Cardiff í því tólfta með sautján stig og Reading í fjórtánda sæti með sextán stig.
Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Bergrós, BKG og íslenska liðið á þriðja degi heimsleikanna Sport Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Uppgjörið: Fram - Grindavík/Njarðvík 0-3 | Í bikarúrslit í fyrsta sinn Íslenski boltinn Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira