Sprauta vatni á smábátana svo ferjan komist áfram 21. júní 2011 10:59
Sannkallað ferjuæði hefur skapast í Noregi vegna sjónvarpsútsendingar frá Hurtigruten, siglingu ferjunnar Nordnorge. Útsendingin slær áhorfsmet og hvarvetna sem ferjan kemur mætir henni mannhaf á bryggjunum til að fagna henni. Frá því á fimmtudag hefur stöð tvö á norska ríkissjónvarpinu, NRK2, verið í beinni maraþonútsendingu frá siglingu ferjunnar milli Bergen og Kirkenes, en hún kemur við í 34 höfnum á leiðinni. Áhugi almennings hefur komið mönnum í opna skjöldu en NRK2 sló eigið áhorfsmet um helgina þegar tvær og hálf milljón manna fylgdust með útsendingunni. Þeirra á meðal var forsætisráðherrann Jens Stoltenberg, sem sagði að þetta væri Noregur upp á sitt allra besta. Sannkölluð þjóðhátíðarstemmning ríkir í bæjunum þar sem ferjan kemur við og hvarvetna flykkist fólk niður á bryggju til að taka á móti henni. Þá fylgir henni fjöldi smábáta og stundum svo mikill að nokkrum sinnum hefur skapast hættuástand. Hafa björgunarskip gripið til þess ráðs að nota öflugar sprautubyssur til að bægja þeim bátum frá sem freistast til að sigla hættulega nærri stefni hennar. Ólíkustu hópar reyna að nýta sér athyglina. Kórar, hljómsveitir, dansflokkar og allskyns skemmtikraftar keppast um að flytja atriði sín á bryggjunum, umhverfissamtök mæta með mótmælaborða gegn olíuleit, bónorð eru flutt í beinni, norski herinn flýgur sýningarflug yfir ferjunni og bæjarstjórar og oddvitar sýna sig og auglýsa byggðir sínar. Fyrir einkafyrirtækið sem rekur Hurtigruten-ferjurnar er auglýsingin talin margra milljarða virði. Ferjan er nú á leið milli nyrstu bæja Noregs, - var í morgun í Hammerfest og í hádeginu í Honningsvåg, - en ferðinni lýkur í Kirkenes klukkan hálftíu í fyrramálið, - og þangað eru ráðherrar nú farnir að boða komu sína. Hægt er að fylgjast með útsendingunni á Fjölvarpi Stöðvar og einnig á netinu.
Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Fleiri fréttir „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Sjá meira