Margir eiga um sárt að binda á jólunum Boði Logason skrifar 5. desember 2011 15:35 Þórhallur Heimisson, sóknarprestur við Hafnarfjarðarkirkju mynd/stefán
Þórhallur Heimisson, sóknarprestur við Hafnarfjarðarkirkju, segir að margir eigi um sárt að binda nú þegar jólin nálgast. Þó að jólin eigi að vera skemmtileg og hátíð ljóss og friðar sé staðreyndin sú að margir hafa miklar áhyggjur á þessum tíma ársins. Þórhallur segir að margir sjái fram á breytt jól vegna peningamála og fátæktar, eftir að hafa misst ástvin á árinu eða vegna skilnaðar. Hann segir að fólk, sem sé að skilja núna, sé að hafa samband og spyrja hvað það eigi að segja við börnin sín. „Þetta er svo skrítið, maður er að taka á móti yndislegum hlæjandi börnum og allt á að vera svo skemmtilegt og æðislegt. Svo á hinn bóginn er mikið af fólki að hringja og koma til okkar og leita ráða vegna skilnaðar. Þetta er fólk sem maður var kannski með í viðtölum í haust og var að bíða með það fram yfir jól og er svo kannski að skilja núna og veit ekki hvað það á að gera,“ segir Þórhallur. „Fólk vill gera eins gott og hægt er þegar börnin eru annars vegar. Þannig það eru ýmsar áhyggjur sem koma upp á þessum tíma ársins,“ segir hann og bendir á að tíðni skilnaða sé hærri í janúar en í desember því fólk reynir að þrauka yfir hátíðina - barnanna vegna. En það eru ekki bara skilnaðarmál sem fólk er með áhyggjur af yfir jólin. Þeir sem hafa misst ástvin á árinu eiga oft erfitt því hlutirnir eru breyttir og öðruvísi en síðustu jól. „Þessi tími margfaldar upp kvíða og sorg, það koma allar þessar hugsanir og það rifjast allt upp. Þetta leggst þungt á sálina hjá mörgum,“ segir Þórhallur. Hann vill benda þeim sem líður illa á jólunum og finna fyrir söknuði og einmanaleika að leita sér aðstoðar hjá sóknarpresti. „Það hjálpar að tala um hlutina og það er hægt að leiðbeina fólki. Þó að hlutirnir séu öðruvísi en það sem áður var þýðir það ekki endalok heimsins. Það er hægt að leita sér aðstoðar eins og til dæmis hjá Nýdögun, þar sem hægt er að koma og ræða hlutina ef fólki líður mjög illa.“ Hann hvetur þá sem eru í góðri stöðu og geta hjálpað öðrum að láta vita af sér. „ Við vitum kannski öll af einhverjum sem á erfitt út af einhverju, hvort sem það er út af missi eða peningamálum, þá eigum að láta vita af okkur og leita þá uppi sem eiga bágt og erfitt.“
Tengdar fréttir Jól í skugga sorgar Aðventan og jólin er tíminn þegar öllum á að líða vel – eða svo teljum við. Og víst er þetta yndislegur tími þegar vel gengur. Um hver jól eru þó margir sem eiga erfitt með að gleðjast og fagna. 5. desember 2011 06:00 Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira
Jól í skugga sorgar Aðventan og jólin er tíminn þegar öllum á að líða vel – eða svo teljum við. Og víst er þetta yndislegur tími þegar vel gengur. Um hver jól eru þó margir sem eiga erfitt með að gleðjast og fagna. 5. desember 2011 06:00