Dreifingu símaskrárinnar hætt og standar fjarlægðir úr verslunum 6. desember 2011 13:28 Egill Gillz Einarsson undirritar samning við Já fyrir rúmu ári síðan.
Símaskráin hefur verið tekin úr virkri dreifingu samkvæmt upplýsingum frá framkvæmdastjóra Já, Sigríði Margréti Oddsdóttur. Þetta hefur meðal annars verið gert í ljósi þess að Egill Gillz Einarsson og unnusta hafa verið kærð fyrir að nauðga átján ára stúlku 25. nóvember síðastliðinn. Sérstakir standar, sem símaskráin var geymd í, hafa einnig verið fjarlægðir úr verslunum Símans, en það var gert í gær. Hún hefur hingað til verið í dreifingu í verslun Símans til áramóta. Að sögn Sigríðar Margrétar, þá var dreifingu í raun lokið þegar málið kom upp, enda hefur símaskráin, sem Egill prýðir ásamt fimleikastúlkum úr Gerplu, verið dreift núna í all nokkra mánuði, en dreifingu hennar í pósthúsum um land allt lauk í raun í ágúst síðastliðnum. Sigríður Margrét segir í samtali við Vísi að ástæðan fyrir því að ekki sé hægt að nálgast skránna lengur í verslun Símans, sé meðal annars vegna alvarlegra ásakana gegn Agli, án þess að Já taki sérstaka afstöðu í því máli að sögn Sigríðar. Það var harðlega gagnrýnt þegar það var tilkynnt á síðasta ári að Egill ætti að prýða forsíðuna. Vísir greindi meðal annars frá því að hundruð manns hefðu skráð sig á mótmælaskjal á netinu vegna þessa. Ástæðan var sú að fólki þótti grínið hans niðurlægjandi og kvenfyrirlitningin mikil. Egill prýddi ekki aðeins forsíðuna heldur var hann titlaður meðhöfundur skrárinnar. Meðal annars voru 17 manns á sérstökum heiðurslista í skránni. Þar af vor 4 konur. Þeir sem voru þess verðugir að komast inn á heiðurslista Egils fengu mynd af sér í símaskránna. Meðal þeirra var Sveinn Andri Sveinsson lögmaður, sem steig fram á Facebook-síðu sinni um helgina og hélt því fram að Egill sætti meðal annars pólitískum ofsóknum. Það verður hinsvegar Borgarleikhúsið sem sér um næstu forsíðu Símaskrárinnar. Enn er hægt að nálgast símaskrá Egils á skrifstofu Já. Vísir greindi frá því í dag að kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefði sett nauðgunarrannsókn gegn Gillz og unnustu í forgang.
Tengdar fréttir Ari Edwald: Gillz fer ekki í loftið á meðan málið er í athugun "Hann fer ekki í loftið á meðan málið er í athugun,“ svarar Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, spurður hvort Egill Gillzenegger Einarsson, muni skemmta landanum á vegum 365 miðla eftir að hann og unnusta hans voru kærð fyrir nauðgun í síðustu viku. 5. desember 2011 10:55 Drífa Snædal: Hrósar stúlkunni sem kærði Gillz fyrir hugrekki Drífa Snædal, fyrrverandi fræðslustýra hjá Samtökum um Kvennaathvarf segir í pistli sínum á vefmiðlinum Smugunni að stúlkan sem hefur kært Egil Einarsson og kærustu fyrir nauðgun, eigi hrós skilið. 2. desember 2011 23:06 Gillz kærður fyrir nauðgun Egill Einarsson, kallaður Gillzenegger, hefur verið kærður fyrir nauðgun. Það er Eyjan.is sem greinir frá þessu. 2. desember 2011 20:40 Gillz segir nauðgunarásakanir fráleitar Egill Einarsson, eða Gillzenegger, segir ásakanir um nauðgun fráleitar og eingöngu til þess fallnar að sverta mannorð sitt. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Egill sendi Vísi fyrir stundu. 2. desember 2011 21:02 Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira
Ari Edwald: Gillz fer ekki í loftið á meðan málið er í athugun "Hann fer ekki í loftið á meðan málið er í athugun,“ svarar Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, spurður hvort Egill Gillzenegger Einarsson, muni skemmta landanum á vegum 365 miðla eftir að hann og unnusta hans voru kærð fyrir nauðgun í síðustu viku. 5. desember 2011 10:55
Drífa Snædal: Hrósar stúlkunni sem kærði Gillz fyrir hugrekki Drífa Snædal, fyrrverandi fræðslustýra hjá Samtökum um Kvennaathvarf segir í pistli sínum á vefmiðlinum Smugunni að stúlkan sem hefur kært Egil Einarsson og kærustu fyrir nauðgun, eigi hrós skilið. 2. desember 2011 23:06
Gillz kærður fyrir nauðgun Egill Einarsson, kallaður Gillzenegger, hefur verið kærður fyrir nauðgun. Það er Eyjan.is sem greinir frá þessu. 2. desember 2011 20:40
Gillz segir nauðgunarásakanir fráleitar Egill Einarsson, eða Gillzenegger, segir ásakanir um nauðgun fráleitar og eingöngu til þess fallnar að sverta mannorð sitt. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Egill sendi Vísi fyrir stundu. 2. desember 2011 21:02