Enski boltinn

Rooney, Van Persie og David Silva í efstu sætunum eftir tíu umferðir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Robin van Persie skoraði 7 mörk í októbermánuði.
Robin van Persie skoraði 7 mörk í októbermánuði. Mynd/Nordic Photos/Getty
Wayne Rooney, hjá Manchester United, Arsenal-maðurinn Robin van Persie og David Silva hjá Manchester City hafa allir spilað frábærlega í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð og það kemur því kannski á óvart að þeir séu í efstu sætunum á þremur aðallistunum í tölfræðinni.

Wayne Rooney er besti leikmaður deildarinnar samkvæmt tölfræðinni en hann hefur náð í flest framlagsstig. Rooney hefur gott forskot á Hollendinginn Rafael Van der Vaart hjá Tottenham en Robin van Persie er síðan í þriðja sætinu.

Robin van Persie er markahæstur en hann hefur skorað tíu mörk eða einu marki meira en þeir Sergio Aguero, Edin Dzeko og Wayne Rooney. Demba Ba er síðan í fimmta sætinu með átta mörk.

Robin van Persie hefur skorað 6 marka sinna með vinstri og fjögur hafa komið með hægri færi. Van Persie hefur aðeins skorða eitt af mörkunum fyrir utan teig en þrjú þeirra hafa komið úr markteignum. Sjö af tíu mörkum hans hafa komið á síðasta hálftímanum.

David Silva er sá sem hefur gefið flestar stoðsendingar eða alls sjö í þessum tíu leikjum. Hann hefur gefið einni stoðsendingu fleira en liðsfélagi sinn Samir Nasri. Manchester City hefur skorað 36 mörk í fyrstu 10 leikjum sínum og það eru alls sex leikmenn liðsins sem hafa gefið þrjár eða fleiri stoðsendingar á tímabilinu.



Flest framlagsstig:

1. Wayne Rooney, Man Utd    280

2. Rafael Van der Vaart, Tottenham    231

3. Robin van Persie, Arsenal    230

4. David Silva, Manchester City    229

5. Edin Dzeko, Manchester City    220

6. Sergio Aguero, Manchester City    214

7. Demba Ba, Newcastle    195

8. Vincent Kompany, Manchester City    193

9. Frank Lampard, Chelsea    185

10. Joleon Lescott, Manchester City    184

Flest mörk:

1. Robin van Persie, Arsenal    10

2. Sergio Aguero, Manchester City    9

3. Edin Dzeko, Manchester City    9

4. Wayne Rooney, Man Utd    9

5. Demba Ba, Newcastle    8

6. Rafael Van der Vaart, Tottenham    6

7. Mario Balotelli, Manchester City    5

8. Frank Lampard, Chelsea    5

9. Gabriel Agbonlahor, Aston Villa    4

10. Danny Graham, Swansea City    4

11. Javier Hernandez, Man Utd    4

12. Daniel Sturridge, Chelsea    4

13. Luis Suarez, Liverpool    4

Flestar stoðsendingar:

1. David Silva, Manchester City    7

2. Samir Nasri, Manchester City    6

3. Ashley Young, Man Utd    5

4. Charlie Adam, Liverpool    4

5. Emmanuel Adebayor, Tottenham    4

6. Gabriel Agbonlahor, Aston Villa    4

7. Chris Brunt, WBA    4

8. Chris Eagles, Bolton    4

9. Yao Gervinho, Arsenal    4

10. Frank Lampard, Chelsea    4

11. Juan Mata, Chelsea    4

12. James Milner, Manchester City    4

13. Micah Richards, Manchester City    4

14. Gnegneri Toure Yaya, Manchester City    4

15. Bobby Zamora Fulham    4




Fleiri fréttir

Sjá meira


×