Erlent

Hreinsi-glaður starfsmaður eyðilagði rándýrt listaverk

Þó hreingerningar séu eflaust af hinu góða má greinilega ofgera öllu. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Þó hreingerningar séu eflaust af hinu góða má greinilega ofgera öllu. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Listaverk sem metið var á tæpar 130 milljónir króna varð hreingerningargleði starfsmanns listasafns að bráð þegar hann tók málningu fyrir óhreinindi og hreinsaði hana sómasamlega af verkinu.

Verkið var nefnt „Þegar þakið fer að leka" og var eftir samtímalistamanninn Martin Kippenberger. Það var til sýningar á Ostwall safninu í Dortmund.

Verkið var einhvers konar gúmmí-trog eða ílát undir viðarvegg. Á trogið höfðu verið málaðar skellur sem áttu að líkjast vatnsblettum.

Starfsmaður safnsins rak augun í blettina, hélt þá raunverulegar vatnsskemmdir eða óhreinindi og nuddaði þá af.

Skemmdirnar uppgötvuðust seint í október og nú er að sögn ómögulegt að koma verkinu í fyrra horf eða lagfæra skemmdirnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×