Erlent

Stúdentar óttast að samskiptavefir hafi alvarleg áhrif á framtíðina

Vinnuveitendur hafa sagt fólki upp eftir að starfsmennirnir skrifuðu illa um þá.
Vinnuveitendur hafa sagt fólki upp eftir að starfsmennirnir skrifuðu illa um þá.
Tæplega helmingur stúdenta óttast að upplýsingar sem þeir birta á samskiptavefjum, eins og Facebook, geti skaðað framtíðarmöguleika þeirra á að fá starfið sem þeir sækjast eftir.

Þetta kemur fram í grein í Daily Telegraph, og er þá vitnað til skoðanakönnunar sem Information Commissioner’s Office (ICO), framkvæmdi.

Í sömu könnun kemur fram að stúdentarnir eru frekar berskjaldaðir gagnvart persónuþjófnaði á netinu.

Fjölmargri hafa lent í því að missa vinnuna eftir að hafa skrifað ógætilega um vinnuveitendur sína eða fyrirtæki. Þannig missti krabbameinssjúkur faðir þriggja barna vinnuna sína í ágúst eftir að hann skrifaði illa um yfirmenn sína.

Hægt er að nálgast grein Telegraph hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×