Kean óttast ekki að missa starfið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. október 2011 10:45 Steve Kean, stjóri Blackburn. Nordic Photos / Getty Images
Steve Kean, stjóri Blackburn, óttast ekki að hann verði rekinn þegar hann mun funda með eigendum félagsins í vikunni. Hinir indversku eigendur félagsins fengu Kean og þá leikmenn félagsins sem eru ekki í landsliðsverkefnum til Indlands þar sem þeir verða næstu vikuna. Blackburn hefur ekki gengið vel undir stjórn Kean sem óttast þó ekki að hann verði látinn taka poka sinn fyrir næsta leik liðsins. „Ég hef margoft heyrt að ég verði brátt tekinn á teppið hjá eigendunum. Það hef ég fengið að heyra í síðustu 6-7 skiptin sem ég hef komið hingað,“ sagði Kean við enska fjölmiðla. „En hingað kem ég einu sinni í mánuði til að fara yfir málin með eigendunum. Við ræðum allt sem skiptir félagið máli - hvernig best væri að hlúa að ungum leikmönnum og hvað við eigum að gera á leikmannamarkaðnum.“ Hann er handviss um að hann sé rétti maðurinn til að snúa við gengi liðsins. „Ég hef fulla trú á sjálfum mér. Ég veit að ég nýt stuðnings eigendanna, leikmannanna og meirihluta stuðningsmannanna og er ánægður í starfinu. Á meðan svo er hef ég trú á því að við getum komist á beinu brautina.“
Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Enski boltinn Scheffler tryggði sér 1.200 milljónir og toppaði Tiger Golf Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ Íslenski boltinn Einn sá besti snýr aftur Sport Fleiri fréttir Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Sjá meira