Pabbi saksóknara deilir á sýslumann 30. júní 2011 12:00 Björgvin Björgvinsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar í Reykjavík.
Sýslumaðurinn á Selfossi gagnrýnir að yfirmenn annarra lögregluliða hafi tjáð sig um barnaníðingsmálið í Vestmannaeyjum án þess að hafa aðgang að rannsókn málsins. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar í Reykjavík, sem gagnrýndi Ólaf Helga harðlega í byrjun vikunnar, er faðir saksóknara málsins. Ólafur Helgi Kjartansson sendi frá sér yfirlýsingu í gær. Þar lýsir hann furðu sinni á því að settur saksóknari málsins, Hulda Elsa Björgvinsdóttir, hafi kosið að lýsa því sem mistökum, lögreglustjórans á Selfossi, að ekki hafi verið gerð krafa um gæsluvarðhald yfir manninum. Þetta hafi Hulda gert, þrátt fyrir að vita, að óformleg samskipti hafi farið fram milli embættana um mögulega gæsluvarðhaldskröfu við upphaf málsins. Þá segir Ólafur yfirmenn annarra lögregluliða hafa vitnað um málið í fjölmiðlum sem sérfræðingar, án þess að hafa kynnt sér rannsókn málsins. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar í Reykjavík, gagnrýndi Ólaf Helga á Rúv í byrjun vikunnar og sagði að hann hefði átt að krefjast gæsluvarðhalds yfir manninum sem sagður er hafa nauðgað stjúpdóttur sinni og er talinn er hafa misnotað fleiri stúlkur í Eyjum síðustu tvö, til þrjú ár. Grófustu brotin tók maðurinn upp á myndband. Björgvin er faðir Huldu Elsu, sem er settur saksóknari í málinu. Fréttastofa náði tali af Björgvini nú í morgun og spurði hvort það væri eðlilegt að hann tjáði sig í fjölmiðlum um mál sem dóttur hans væri í forsvari fyrir, án þess að geta tengsla sinna. Björgvin sagðist ekkert vilja tjá sig um þetta. "Bara no comment, eins og maður segir," sagði hann.
Tengdar fréttir Meintur barnaníðingur bar við minnisleysi Karlmaðurinn sem grunaður er um að hafa misnotað þrjár stúlkur kannaðist við yfirheyrslur við að eiga klámfengið efni sem fannst í tölvum á heimili hans en bar við minnisleysi þegar honum voru sýndar myndir af honum misnota eina stúlkuna. Á heimili mannsins fundust tæplega 9 þúsund ljósmyndir og rúmlega 600 hreyfimyndir sem sýna börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Brotinn varða allt að 16 ára fangelsi, en stór hluti brotanna er til á upptökum og ljósmyndum. 29. júní 2011 17:39 Lögregla gæti hafa gert mistök í máli barnaníðings Meintur barnaníðingur í Vestmannaeyjum gekk laus í um það bil eitt ár eftir að myndir sem hann tók af fórnarlambi sínu komust í hendur lögreglu. Hann er grunaður um að hafa níðst á fórnarlambi sínu, átta ára stjúpdóttur sinni, svo mánuðum skipti. 29. júní 2011 08:00 Sýslumaður átti að krefjast gæsluvarðhalds yfir stjúpföðurnum Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, gagnrýnir Ólaf Helga Kjartansson, sýslumann á Selfossi, og segir að eðlilegt hefði verið að krefjast gæsluvarðhalds yfir manni sem talinn er hafa nauðgað stjúpdóttur sinni í Vestmannaeyjum síðari hluta árs 2009 og fyrri hluta ársins 2010. Að auki eru grunur um að maðurinn hafi misnotað tvær aðrar stúlkur á sama reki en grófustu brotin tók hann upp á myndband. Rætt var við Björgvin kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. 28. júní 2011 18:06 Mest lesið Eftirförin endaði með hvelli Innlent Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Fleiri fréttir „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Sjá meira
Meintur barnaníðingur bar við minnisleysi Karlmaðurinn sem grunaður er um að hafa misnotað þrjár stúlkur kannaðist við yfirheyrslur við að eiga klámfengið efni sem fannst í tölvum á heimili hans en bar við minnisleysi þegar honum voru sýndar myndir af honum misnota eina stúlkuna. Á heimili mannsins fundust tæplega 9 þúsund ljósmyndir og rúmlega 600 hreyfimyndir sem sýna börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Brotinn varða allt að 16 ára fangelsi, en stór hluti brotanna er til á upptökum og ljósmyndum. 29. júní 2011 17:39
Lögregla gæti hafa gert mistök í máli barnaníðings Meintur barnaníðingur í Vestmannaeyjum gekk laus í um það bil eitt ár eftir að myndir sem hann tók af fórnarlambi sínu komust í hendur lögreglu. Hann er grunaður um að hafa níðst á fórnarlambi sínu, átta ára stjúpdóttur sinni, svo mánuðum skipti. 29. júní 2011 08:00
Sýslumaður átti að krefjast gæsluvarðhalds yfir stjúpföðurnum Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, gagnrýnir Ólaf Helga Kjartansson, sýslumann á Selfossi, og segir að eðlilegt hefði verið að krefjast gæsluvarðhalds yfir manni sem talinn er hafa nauðgað stjúpdóttur sinni í Vestmannaeyjum síðari hluta árs 2009 og fyrri hluta ársins 2010. Að auki eru grunur um að maðurinn hafi misnotað tvær aðrar stúlkur á sama reki en grófustu brotin tók hann upp á myndband. Rætt var við Björgvin kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. 28. júní 2011 18:06