Umfjöllun: Breiðablik vann kærkominn sigur á Keflavík Stefán Árni Pálsson skrifar frá Kópavogsvelli skrifar 27. júní 2011 12:52 Úr leiknum í kvöld. Mynd/HAG
Íslandsmeistarar Breiðabliks náðu að innbyrða kærkominn sigur, 2-1, gegn Keflvíkingum á Kópavogsvelli í kvöld. Kristinn Steindórsson, leikmaður Breiðabliks, var frábær fyrir heimamenn og gerði bæði mörk Blika í leiknum. Heimamenn hófu leikinn vel og voru virkilega ákveðnir í öllum sínum aðgerðum. Blikar fóru stíft upp kantana og nokkur hættuleg færi komu útfrá því. Keflvíkingar voru samt einnig skeinuhættir og létu byrjun Blika ekki trufla þeirra skipulag, en fyrsta mark leiksins kom eftir tuttugu mínútna leik þegar Hilmar Geir Eiðsson kom gestunum yfir með fínu marki. Guðmundur Steinarsson, leikmaður Keflvíkinga, skallaði boltann inn fyrir vörn Blika þar sem Hilmar Geir var einn á auðum sjó. Eftirleikurinn auðveldur fyrir Hilmar sem afgreiddi boltann vel framhjá Ómari Jóhannssyni, markverði Keflvíkinga. Eftir mark Keflvíkinga hresstust bæði lið mikið og sóttu sem aldrei fyrr að marki andstæðingsins. Keflvíkingar fengu nokkur tækifæri til þess að komast í 2-0 en náði ekki að nýta sér þau tækifæri. Það voru síðan Blikar sem náðu að jafna metin á markamínútunni frægu - þeirri 43. Dylan Macallister, framherji Blika, fékk boltann á vinstri kanti, sendi frábæra fyrirgjöf á Kristinn Steindórsson sem afgreiddi knöttinn í netið. Staðan því 1-1 í hálfleik sem verður að teljast nokkuð sanngjörn staða. Blikar byrjuðu síðari hálfleikinn vel og voru ákveðnir í öllum sínum aðgerðum á meðan Keflvíkingar áttu erfitt með að skapa sér hættuleg færi. Kristinn Steindórsson kórónaði frábæran leik sinn með því að skora annað mark heimamanna á 64. mínútu leiksins og koma heimamönnum yfir, en hann fékk laglega sendingu inn fyrir vörn Keflvíkinga frá Macalisster og afgreiðslan var frábær hjá þessum snjalla framherja. Kristinn hefur nú gert átta mörk í Pepsi-deild karla í sumar og er langmarkahæstur það sem af er móti. Keflvíkingar reyndu eins og þeir gátu það sem eftir lifði leiks en það gekk erfilega að skapa hættuleg færi, en úrslitasendingar geiguðu oft á tíðum þegar liðið var komið í ákjósanlegt tækifæri. Virkilega mikilvægur sigur fyrir Breiðablik sem fengu heldur betur kalda vatnsgusu í andlitið gegn BÍ/Bolungarvík í Valitor-bikarnum í síðustu viku. Blikar eru því komnir með 11 stig í sjöunda sæti deildarinnar en Keflvíkingar eru enn með 8 stig sæti neðar.Dómari: Örvar Sær Gíslason (5)Skot (á mark): 8 – 8 (5-5)Varin skot: Sigmar 4 – 3 ÓmarHorn: 5 – 5Aukaspyrnur fengnar: 10 – 20Rangstöður: 2-5
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Laufey Lín hjálpaði Alysu Liu að vinna gullið Sport Sofnaði í aftursætinu á leið á Ólympíuleikana og komst aldrei alla leið Sport Drukkin í útsendingu og baðst afsökunar Sport „Þegar ég lít til baka veit ég ekki hvað ég var að hugsa“ Enski boltinn Þórsarar fá nýtt íþróttahús Sport Uppgjör: Haukar - FH 25-32| Haukar létu valta yfir sig á heimavelli Handbolti „Það væri bara mjög hrokafullt að vera ekki ánægður“ Sport Ísraelskir Ólympíuforkólfar vilja banna sjónvarpslýsanda Sport Víkingur og Breiðablik unnu bæði 1-0 sigra í kvöld Íslenski boltinn Hákon tekinn af velli í hálfleik í tapleik Fótbolti Fleiri fréttir Víkingur og Breiðablik unnu bæði 1-0 sigra í kvöld Snýr aftur heim frá Val: „Nenni ekki að hafa þetta of væmið“ Þjálfari Stólanna segir upp störfum áður en tímabilið byrjar Sverrir frá Eyjum til FH „Breiðablik búið að vera mígandi utan í mig í mörg ár“ Utan vallar: Eins og að missa ljósleiðarann og þurfa að nota aftur gamla módemið FH hafði betur gegn Stjörnunni Breiðablik kaupir Ívar af KA Blikar að landa Ívari KA vann meistarana og Stígur Diljan sá rautt KSÍ dregur úr verðhækkunum KR lenti tveimur undir en er enn án taps Keflavík og HK á sigurbraut Vantaði smá pung og samdi við Gumma Magg Þróttarar ekki í vandræðum með Blika Dramatík í Suðurnesjaslag Draga sig úr keppni og hvetja félög til að beita sér á ársþingi KSÍ „Þetta er allt annað dæmi“ Íslenska deildin byrjar langsíðust Freyja með þrennu er Víkingur valtaði yfir Fram Hallgrímur bætist við landsliðshópinn Kristján krækti í einn besta leikmann Bestu deildarinnar Guðmundur Magnússon skiptir úr bláu í grænt Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö FH sækir sænskan miðvörð „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Sjá meira