Erlent

Eins árs fangelsi fyrir ljóðalestur

Mótmælendur kalla á frelsun fanga, síðastliðinn föstudag í Bahrain.
Mótmælendur kalla á frelsun fanga, síðastliðinn föstudag í Bahrain. Mynd/AP
Dómur féll yfir 20 ára gamalli konu í Bahrain í dag, en hún fékk eitt ár í fangelsi fyrir að hafa lesið upp ljóð sem gagnrýndu stjórn landsins. Dómurinn er hluti af aðgerðaráætlun konungs til þess að sporna við mótmælum Sjíta sem krefjast aukinna réttinda.

Konan sem dæmd var, Ayat al-Qurmezi, öðlaðist skyndilega frægð á meðal mótmælenda eftir hún las ljóðin sín upp á Perlutorginu í Manama, höfuðborg Bahrain, en ljóðin gagnrýndu bæði konung landsins og forsætisráðherra.

Mótmæli brutust út í Bahrain í febrúar í kjölfar innblásturs frá uppreisnum Araba í Túnis og Egyptalandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×